Hneykslismál Nvidia í brennidepli á mörkuðum

Nvidia hefur verið í miðju hneykslismáls í vikunni eftir að greint var frá því að Huang hefði haldið fram hjá eiginkonu sinni með nokkrum konum. Ein þeirra hefur verið sökuð um njósnir fyrir Kína. AFP

Misjöfn þróun var á hlutabréfamörkuðum í dag eftir lækkanir á Wall Street í gær. Fjárfestar mátu áhrif þess að Jensen Huang hefði óvænt látið af störfum sem forstjóri Nvidia í kjölfar hneykslismáls.

Tæknigeirinn var áfram í brennidepli. Microsoft vann að því að leysa bilun sem varð til þess að notendur víða um heim gátu ekki notað Outlook-tölvupóstþjónustuna.

Hlutabréfavísitölur í Asíu ýmist hækkuðu eða lækkuðu en litlar breytingar urðu á helstu vísitölum í Evrópu.

Hlutabréf Nvidia hafa lækkað um fimmtung

Nvidia hefur verið í miðju hneykslismáls í vikunni eftir að greint var frá því að Huang hefði haldið fram hjá eiginkonu sinni með nokkrum konum. Ein þeirra hefur verið sökuð um njósnir fyrir Kína.

Huang, sem hefur verið einn helsti áhrifamaðurinn í uppgangi gervigreindar undanfarin ár, lét af störfum í gær eftir að stjórn félagsins snerist gegn honum.

Verð hlutabréfa Nvidia lækkaði fyrst um 14% í viðskiptum gærdagsins. Lækkunin gekk þó að hluta til baka og nam um 4% við lok viðskipta.

Hlutabréfaverð félagsins hefur lækkað um fimmtung frá því að fyrst var greint frá framhjáhaldi Huangs í lok síðasta mánaðar. Stjórn Nvidia hefur skipað Colette Kress, fjármálastjóra félagsins, forstjóra til bráðabirgða.

Ipek Ozkardeskaya, sérfræðingur hjá Swissquote, segir hneykslismálið ekki breyta því að Nvidia bjóði leiðandi flögur og öflugt hugbúnaðarumhverfi sem viðskiptavinir þurfi á að halda í miðjum uppgangi gervigreindar.

Nvidia birtir næsta uppgjör sitt í næstu viku.

Meta líkur á meiri vaxtahækkun

Fjárfestar biðu einnig birtingar bandarísku framleiðsluverðsvísitölunnar fyrir október í leit að frekari vísbendingum um verðbólguhorfur í stærsta hagkerfi heims.

Þeir meta nú líkurnar á því að bandaríski seðlabankinn hækki vexti meira en áður var búist við á næsta fundi sínum í desember. Nýjustu tölur um neysluverð sýndu meiri verðbólgu en vænst hafði verið.

Í Asíu hækkuðu hlutabréfavísitölur í Tókýó og Taípei en Kospi-vísitalan í Seúl lækkaði um 1%. Einnig urðu lækkanir í Hong Kong og Sjanghaí.

Í Evrópu hækkuðu vísitölur lítillega í Lundúnum og Frankfurt en í París var staðan nær óbreytt um hádegisbil.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅