Síðustu klukkustundir Jensen Huang í starfi – Innherjar lýsa niðurbrotnum manni

Jensen Huang, stofnandi og fráfarandi forstjóri tæknirisans Nvidia, er sagður hafa verið niðurbrotinn og sýnt merki um uppgjöf síðustu dagana í starfi. Greint var frá því í gær að Huang hefði ákveðið að hætta sem forstjóri.

Þetta gerðist í kjölfar þess að Huang lenti umfangsmiklu hneykslismáli vegna meintra hjúskaparbrota og gruns um tengsl einnar konunnar við kínversk yfirvöld.

Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Mail sem vísar til heimildarmanna Bloomberg sem lýsa síðustu dögum Huang hjá fyrirtækinu.

Samkvæmt heimildarmönnunum hafði Huang tekið miklum breytingum eftir því sem hneykslið vatt upp á sig. Hann var sagður tilfinningalega örmagna og hafði ítrekað látið falla orð á borð við „mér er sama“ og „hvað með það“.

Þá er hann sagður hafa verið afar harður í eigin garð og meðal annars kallað sjálfan sig „algjöran skíthæl“.

Huang hafði lengi verið þekktur fyrir gríðarlega vinnusemi og að svara tölvupóstum stjórnenda Nvidia á öllum tímum sólarhringsins. Síðustu dagana höfðu hins vegar orðið áberandi breytingar og fóru svörin að láta á sér standa.

Á miðvikudagskvöld fundaði stjórn Nvidia með Huang eftir að fregnir bárust af öðru meintu ástarsambandi hans, að þessu sinni við háttsettan starfsmann fyrirtækisins. Fundurinn dróst langt fram á nótt og daginn eftir tilkynnti Huang að hann ætlaði að stíga til hliðar.

Fjármálastjóri Nvidia, Colette Kress, tók tímabundið við forstjórastarfinu.

Málið hefur jafnframt vakið áhyggjur af þjóðaröryggi Bandaríkjanna vegna gruns um að kona sem Huang átti í sambandi við kunni að tengjast kínverskri leyniþjónustu. Huang hefur verið kallaður til að bera vitni fyrir nefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings vegna málsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅