Olíuverðið hrynur en íslensku dælurnar bifast lítið - „Í eðli mínu er ég kapítalisti en ég er farinn að tala fyrir inngripi stjórnvalda“
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 13. nóvember 2026 13:00
Runólfur segir að heimslækkun olíuverðs sé ekki að skila sér til Íslands þrátt fyrir gengisstyrkingu.
Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðareigenda, harmar að bensínverðið á Íslandi hafi ekki lækkað líkt og heimsmarkaðsverð eftir kosningar í Bandaríkjunum. Kallar hann eftir inngripum stjórnvalda til þess að koma á eðlilegri markaði hér með eldsneyti.
„Í eðli mínu er ég kapítalisti en ég er farinn að tala fyrir inngripi stjórnvalda í þennan markað. Þetta er það stór hluti af vísitölunni og almennum kostnaði heimila og fyrirtækja,“ segir Runólfur í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Hráolíuverð hefur fallið eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum þann 3. nóvember. En verðlag á íslenskum bensínstöðvum hefur ekki fylgt því.
Runólfur segir fákeppnina skíra að miklu leyti hvers vegna bensínverð haldist hátt og kallar eftir aðgerðum. Lítur hann til Evrópu í því samhengi.
„Við sjáum þetta gert í miklu stærri samfélögum. Danmörku, Belgíu, Hollandi, Lúxemborg, Þýskalandi. Þar sjá menn ástæðu til þess að hafa eitthvað aðhald með markaðinum,“ segir Runólfur.
Belgía eða Danmörk
Nefnir hann sérstaklega belgísku og dönsku leiðirnar sem virki mjög vel.
„Ég get séð fyrir mér annað hvort að það yrði sett þak á hverjum tíma eins og er gert í Belgíu. Þeir setja vikuþak á álagningu. Það er ekkert fyrirtæki á markaðinum sem fer upp í þetta þak,“ segir hann.
Sjá einnig:
Bensíndropinn dýrastur á Íslandi en díseldropinn næstdýrastur
Hin leiðin sé eins og í Danmörku að félögum er gert skilt að hafa vöruverð á öllum dælum og öllum stöðvum sýnilegt á vefsvæði sem er mjög auðvelt að nálgast. Alltaf hægt að sjá hvar sé hagstæðast að kaupa eldsneyti.
Runólfur bendir á að það ætti að vera nokkuð einfalt að fara í aðgerðir hér. Olíuverðið sé alltaf fyrirliggjandi á norður Evrópu markaðinum sem Ísland sé á. Íslensku fyrirtækin séu öll með sama byrgjann, hið norska Equinor sem sendir hingað olíuskip tvisvar í mánuði. Eini verðmunurinn sé sá að sá sem kaupir mest fái olíuna nokkrum aurum ódýrari.
Bara samkeppni í Garðabæ
Vissulega spili fjarlægðirnar rullu, það er flutningskostnaður olíunnar til Íslands og innan Íslands. En rekstrarkostnaður bensínstöðva hafi hríðlækkað eftir að viðskiptavinir fóru sjálfir að dæla á bílana og gengi krónunnar hefur farið hækkandi að undanförnu.
„Íslenska krónan hefur verið sterk. Það ætti að hjálpa okkur í innkaupum,“ segir Runólfur. En gengisstyrkingin sé ekki að ganga í vasa neytenda.
Eina fyrirtækið sem bjóði umtalsvert lægra verð sé Costco, oft um 15 krónum, en samkeppnin nái ekki út fyrir Garðabæinn og nágrenni. Á landsbyggðinni sé olíuverð til dæmis miklu hærra.
Lífeyrissjóðirnir skapa vanda
Stór vandi að mati Runólfs er stefna lífeyrissjóðanna, sem eiga stóra hluti í olíufélögunum en sinna ekki aðhaldi sem skildi. Þeir eru sem sagt óvirkir eigendur sem hugsi fyrst og fremst um að skila sjóðsfélögum góðum arði í árslok. En það skapi þá neikvæða hvata í rekstri fyrirtækjanna og setji álagninguna í óeðlilegar hæðir.
„Langtímahugsunin ætti náttúrulega að vera: Hvernig getum við náð fram eðlilegri samkeppni náð fram eðlilegu umhverfi. Að fyrirtæki sem væri að reyna að vinna inn markaðshlutdeild með góðri verðlagningu, það væri æskilegur aðili til þess að vera í eignasambandi við. En ekki eins og núverandi kerfi er,“ segir Runólfur.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗