Bilunin hefur ekki truflað ríkisstjórnina
Umfangsmikil alþjóðleg bilun hjá Microsoft hefur ekki valdið ríkisstjórninni vandræðum.
„Ég hef bara verið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Við megum ekki einu sinni fara með síma inn á þá þannig að það truflaði ekki þann fund,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í samtali við mbl.is.
Önnur íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa þó ekki farið varhluta af þessu og hafa til að mynda Háskóli Íslands, Ferðamálastofa og Sjúkrahúsið á Akureyri greint frá truflun á þjónustu.
Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS, sagði í viðtali á mbl.is í morgun að svona víðtæk bilun hefði ekki þekkst í langan tíma.
Eyjólfur segir málið ekki hafa verið rætt á ríkisstjórnarfundi en Umbra, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, sé með viðbragðsáætlanir fyrir slík tilfelli.
„Umbra fylgist með stöðunni og er með viðbragðsáætlanir til að bregðast við þegar kerfið fer niður og getur gripið til tæknilegra ráðstafana ef þess þarf.“
Tölvupóstur hundraða milljóna óaðgengilegur í um 18 klukkustundir
Kerfi Microsoft virðast vera að komast í lag og hafa fyrstu tölvupóstar byrjað að skila sér víða.
Enn er þó of snemmt að segja til um hvort búið sé að komast fyrir vandann eða hvort þetta sé aðeins tilfallandi lausn hjá litlum hópi notenda.
Um er að ræða eina mestu kerfistruflun sem orðið hefur í heiminum, en tölvupóstur hundraða milljóna hefur verið óaðgengilegur í um 18 klukkustundir.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗