Sá markahæsti í sögu Víkings kveður og fer norður
Framherjinn Nikolaj Hansen er farinn frá Víkingi eftir að hafa leikið með félaginu frá sumrinu 2017. Félagið tilkynnti um brottför framherjans og fyrirliðans í dag og nokkrum mínútum síðar kynnti KA hann til leiks sem nýjan leikmann.
Hansen skoraði 121 mark í 310 leikjum fyrir Víking og er markahæsti leikmaður félagsins í efstu deild karla frá upphafi. Þá hefur enginn leikmaður íslensks félags skorað fleiri mörk í Evrópukeppnum.
Hann varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari með Víkingi. Er hann einn sigursælasti erlendi leikmaðurinn í sögu íslenska fótboltans.
„Framlag Nikolaj verður þó ekki aðeins metið í mörkum, leikjum og titlum. Hann hefur verið mikilvægur hluti af liðsheildinni, innan vallar sem utan,“ segir meðal annars í tilkynningu Víkings, sem þakkar Hansen fyrir framlagið og óskar honum og fjölskyldu hans velfarnaðar.
KA réð Srdjan Tufegdzic til starfa fyrr í dag og er nóg að gera á skrifstofu Akureyrarfélagsins sem féll niður í 1. deild á tímabilinu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗