Sá markahæsti í sögu Víkings kveður og fer norður

Nikolaj Hansen er kominn til KA.

Nikolaj Hansen er kominn til KA. Ljósmynd/KA

Framherjinn Nikolaj Hansen er farinn frá Víkingi eftir að hafa leikið með félaginu frá sumrinu 2017. Félagið tilkynnti um brottför framherjans og fyrirliðans í dag og nokkrum mínútum síðar kynnti KA hann til leiks sem nýjan leikmann.

Hansen skoraði 121 mark í 310 leikjum fyrir Víking og er markahæsti leikmaður félagsins í efstu deild karla frá upphafi. Þá hefur enginn leikmaður íslensks félags skorað fleiri mörk í Evrópukeppnum.

Hann varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari með Víkingi. Er hann einn sigursælasti erlendi leikmaðurinn í sögu íslenska fótboltans.

„Framlag Nikolaj verður þó ekki aðeins metið í mörkum, leikjum og titlum. Hann hefur verið mikilvægur hluti af liðsheildinni, innan vallar sem utan,“ segir meðal annars í tilkynningu Víkings, sem þakkar Hansen fyrir framlagið og óskar honum og fjölskyldu hans velfarnaðar.

KA réð Srdjan Tufegdzic til starfa fyrr í dag og er nóg að gera á skrifstofu Akureyrarfélagsins sem féll niður í 1. deild á tímabilinu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅