Uppáhalds drykkur Sunnevu í veikindunum: „Þetta hljómar ógeðslega, en þetta er ógeðslega gott“
Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsdrottningin Sunneva Einarsdóttir segir kaffi ekki lengur málið og er komin með nýtt æði sem hefur verið í uppáhaldi hjá henni undanfarna daga, en Sunneva hefur legið í veikindum í vikunni.
„Það er te, earl grey, hversu boring er ég. Feit skeið af hunangi, mjög feit skeið,“ segir Sunneva.
Eftir að vatninu er bætt út í bíður hún í fimm mínútur. „Svo set ég mjólk. Þetta hljómar ógeðslega en þetta er ógeðslega gott.“
Skjáskot/Instagram
Sunneva birti myndband af sér útbúa drykkinn í Story og spurði: „Er ég hundrað ára eða er ég bara bresk?“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗