Tölur leysa bókstafi af hólmi við lok grunnskóla
Samkvæmt nýja kvarðanum merkir einkunnin sjö að nemandi hafi náð þeirri hæfni sem stefnt er að. Átta og níu lýsa meiri dýpt, öryggi og sjálfstæði við að beita hæfninni. mbl.is/Karítas
Nemendur í 10. bekk fá lokaeinkunnir í tölum í stað bókstafa við útskrift vorið 2027. Einkunnirnar verða á kvarðanum fjórir til tíu og námundaðar að næstu heilu tölu.
Þetta kemur fram í tilkynningu menntamálaráðuneytisins um staðfesta breytingu á aðalnámskrá grunnskóla. Markmiðið er að gera einkunnir skýrari, auka jafnræði milli skóla og veita nemendum og foreldrum betri upplýsingar um námsstöðu, framfarir og hæfni.
Skólar eru hvattir til að nota kvarðann einn til tíu við námsmat á skólaárinu, svo sem fyrir einstök próf og verkefni. Við útskrift verður hins vegar notaður kvarðinn fjórir til tíu.
Í tilkynningunni segir að ekki sé talið réttlætanlegt eða uppbyggilegt að gefa grunnskólabarni einn, tvo eða þrjá í lokaeinkunn eftir heilan skólavetur.
Heildarmat á hæfni nemandans
Ráðuneytið leggur áherslu á að greina þurfi á milli einkunna fyrir einstök verkefni og próf annars vegar og lokaeinkunnar hins vegar.
Einkunn fyrir verkefni lýsi frammistöðu í því verkefni. Lokaeinkunn sé aftur á móti heildstætt mat á þekkingu, leikni og hæfni sem nemandinn hafi sýnt yfir skólaárið. Matið byggist á hæfniviðmiðum aðalnámskrár og fjölbreyttum matsgögnum. Lokaeinkunn sé því ekki einkunn fyrir eitt lokapróf.
Lokaeinkunn verður reiknuð sem vegið meðaltal einkunna fyrir einstaka hæfniþætti og námunduð að næstu heilu tölu.
Sjö merkir að hæfniviðmiðum sé náð
Samkvæmt nýja kvarðanum merkir einkunnin sjö að nemandi hafi náð þeirri hæfni sem stefnt er að. Átta og níu lýsa meiri dýpt, öryggi og sjálfstæði við að beita hæfninni.
Einkunnin tíu lýsir framúrskarandi hæfni og stöðugri frammistöðu. Til að fá tíu þarf nemandi þó ekki að sýna hæfni umfram kröfur grunnskólans eða hafa lokið framhaldsskólaáfanga á grunnskólagöngu sinni.
Einkunnirnar fimm og sex merkja að nemandi sé á leið að því að ná þeirri hæfni sem stefnt er að. Fái nemandi fimm eða sex í íslensku, stærðfræði eða ensku þarf hann að taka undirbúningsáfanga í viðkomandi grein.
Einkunnin fjórir merkir að nemandi hafi ekki náð þeirri hæfni sem stefnt er að. Skólinn skal þá lýsa sérstaklega því sem nemandinn hefur náð tökum á.
Ákveða vægi hæfniþátta fyrir lok janúar
Skólar skulu ákveða vægi einstakra hæfniþátta fyrir lok janúar 2027 og geta stuðst við leiðbeiningar ráðuneytisins. Nánari útfærsla námsmatsins skal birt í skólanámskrá fyrir útskrift vorið 2027.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, MMS, styður skóla við innleiðinguna. Í könnun sem lögð var fyrir innleiðingarteymi skóla í byrjun október töldu tæplega 90% þeirra 105 skóla sem tóku þátt að innleiðingarfundir MMS nýttust vel. Um 70% skólanna töldu sig skilja nýja einkunnakvarðann mjög vel eða vel.
MMS undirbýr einnig reiknitól fyrir lokaeinkunnir. Jafnframt er unnið að öruggum, sjálfvirkum flutningi einkunna vegna innritunar í framhaldsskóla vorið 2027. Lausnin verður prófuð með skólum áður en hún verður tekin í notkun um allt land og verða varaleiðir tiltækar.
Breytingin á aðalnámskránni hefur tekið gildi og gildir til 1. júlí 2027.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗