Pochettino orðinn stjóri United

Mauricio Pochettino hefur verið ráðinn stjóri United.

Mauricio Pochettino hefur verið ráðinn stjóri United. AFP/Patrick T. Fallon

Mauricio Pochettino hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United. Félagið staðfesti ráðningu Argentínumannsins í dag en hann tekur við af Michael Carrick, sem var rekinn í gær.

Pochettino hefur störf 18. nóvember og stýrir United í fyrsta sinn gegn Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni 22. nóvember.

Hann kemur frá bandaríska landsliðinu, sem hann kom í 16 liða úrslit heimsmeistaramótsins í sumar. Pochettino þekkir enska boltann vel eftir að hafa þjálfað Southampton, Tottenham og Chelsea.

Mestum árangri sínum á Englandi náði hann með Tottenham. Liðið tryggði sér fjórum sinnum í röð sæti í Meistaradeildinni undir hans stjórn og komst í fyrsta sinn í úrslitaleik keppninnar árið 2019.

Pochettino hóf þjálfaraferilinn hjá Espanyol árið 2009 og stýrði einnig Paris Saint-Germain, þar sem hann vann franska meistaratitilinn, bikarinn og meistarakeppni Frakklands.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅