Pochettino orðinn stjóri United
Mauricio Pochettino hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United. Félagið staðfesti ráðningu Argentínumannsins í dag en hann tekur við af Michael Carrick, sem var rekinn í gær.
Pochettino hefur störf 18. nóvember og stýrir United í fyrsta sinn gegn Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni 22. nóvember.
Hann kemur frá bandaríska landsliðinu, sem hann kom í 16 liða úrslit heimsmeistaramótsins í sumar. Pochettino þekkir enska boltann vel eftir að hafa þjálfað Southampton, Tottenham og Chelsea.
Mestum árangri sínum á Englandi náði hann með Tottenham. Liðið tryggði sér fjórum sinnum í röð sæti í Meistaradeildinni undir hans stjórn og komst í fyrsta sinn í úrslitaleik keppninnar árið 2019.
Pochettino hóf þjálfaraferilinn hjá Espanyol árið 2009 og stýrði einnig Paris Saint-Germain, þar sem hann vann franska meistaratitilinn, bikarinn og meistarakeppni Frakklands.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗