Skrifað var undir kjarasamning í morgun

Frá undirritun samninga á skrifstofu Landssambands smábátaeigenda við Hverfisgötu í Reykjavík í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur Sjómannasambandsins (SSÍ) við Landssamband smábátaeigenda (LS) og Samtök smærri útgerða (SSÚ).

„Það er fagnaðarefni að loksins hafi tekist að gera nýjan samning fyrir smábáta. Síðast var gerður kjarasamningur fyrir smábáta árið 2012,“ segir Valmundur Valmundarson, formaður Sjómannasambandsins, í tilkynningu um samninginn.

„Samningurinn er í anda þess samnings sem sjómenn gerðu 2024 við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi,“ segir hann jafnframt, en meðal annars hafi verið samið um að sjómenn á smábátum fái 3,5% í tilgreinda séreign frá útgerðinni.

Samningurinn fer nú í kynningu meðal félagsmanna og atkvæðagreiðslu að henni lokinni.

„Þau félög auk Sjómannasambandsins sem aðild eiga að samningnum eru Félag Skipstjórnarmanna, FS, VM- félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, SVG.“

Fram kemur að gildistími samningsins er til ársins 2033, en báðir aðilar geta sagt honum upp á tímabilinu, útgerðin 2028 og sjómenn 2029.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅