Máni uppnefnir ríkisstjórnina eftir skóflustungu gærdagsins - „Mun aldrei skila okkur neinum tekjum“

Þorkell Máni Pétursson, stjórnarmaður hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ), lét stjórnvöld heyra það í Bítinu á Bylgjunni þegar hann ræddi fyrirhugaða byggingu nýrrar þjóðarhallar í íþróttum.

Ríkisstjórn Íslands og Reykjavíkurborg tóku í gær fyrstu skóflustunguna að höllinni, sem áætlað er að muni kosta um 17 milljarða króna. Ríkið greiðir 55 prósent en borgin 45 prósent í höllinni.

Máni er afar ósáttur við forgangsröðun stjórnvalda og telur að knattspyrnan sitji eftir.

„Við sjáum vitleysuna eins og það að byggja nýja þjóðarhöll. Mér finnst þetta alltaf jafn fyndið,“ sagði Máni.

Frá gærdeginum

Hann gekk enn lengra í gagnrýni sinni og skaut föstum skotum á ríkisstjórnina.

„Þetta er drepfyndið, þetta verk stjórnmálamannanna. Þess vegna kalla ég þessa ríkisstjórn oft Harpix-stjórnina," segir Máni og notar þar harpix til að vitna til þess að þarna verður handbolti mikið iðkaður.

Máni telur að fjármununum sé illa varið og bendir á að knattspyrnan skili tekjum á meðan nýja þjóðarhöllin muni að hans mati aðeins skapa útgjöld.

„Það er verið að byggja íþróttahús sem mun aldrei skila okkur neinum tekjum, bara kostnaði.“

Hann segir stjórnvöld vanrækja þá íþróttagrein sem geti skapað verulegar tekjur.

„Við erum með heila íþróttagrein sem skilar tekjum en hún fær ekki neitt. Stjórnmálafólk eru ótrúlegir vitleysingar.“

Um Þjóðarhöll

  • Nýtt fjölnota mannvirki fyrir innanhússíþróttir, menningu, kennslu og viðburði, í Laugardal sunnan við Laugardalshöll. Þjóðarhöllin tengist bæði Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöllinni.
  • Um 17.700 m², 8.600 sæti og allt að 12.000 gestir á viðburðum.
  • Laugardalshöll, sem var vígð 1965, uppfyllir ekki lengur alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu og landsliðin hafa leikið þar á undanþágu.
  • Verksamningur um hönnun og byggingu var undirritaður 30. september 2026 við Íslenska aðalverktaka og samstarfsaðila þeirra: ASK arkitekta, COWI, LPO arkitekter, Ísloft, EOH og Landhönnun. Samningurinn var gerður að loknu forvali og samkeppnisútboði.
  • Samningsupphæð er 16,825 milljarðar króna með virðisaukaskatti, bundin vísitölu byggingarkostnaðar frá janúar 2026. Ríkissjóður Íslands og Reykjavíkurborg fjármagna verkefnið.
  • Þjóðarhöll ehf. var stofnuð í janúar 2024 og er í eigu ríkissjóðs Íslands (55%) og Reykjavíkurborgar (45%).
  • Stefnt er að BREEAM-umhverfisvottun með einkunnina „Very Good“. Þjóðarhöllin verður hönnuð samkvæmt algildri hönnun, sem tryggir að húsið verði opið öllum almenningi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅