Fyrstu félagaskipti Pochettino klár?

Mauricio Pochettino er að taka við Manchester United.

Mauricio Pochettino er að taka við Manchester United. AFP/Frederic Brown

Folarin Balogun, framherji Mónakó, hefur áhuga á að ganga til liðs við Manchester United og vinna áfram með Mauricio Pochettino sem er að taka við enska liðinu.

Mónakó í Frakklandi er reiðubúið að selja Balogun og var hann nálægt því að ganga í raðir Everton í sumar.

Balogun hefur skorað eitt mark í sjö leikjum fyrir Mónakó á tímabilinu og spilað um 230 mínútur.

Hann hefur skorað 12 mörk í 31 leik fyrir Bandaríkin, þar sem Pochettino hefur verið landsliðsþjálfari hans.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅