Alveg endurnærður eftir níu ára fjarveru
Tinie Tempah er á leið til Íslands í þriðja sinn. Hann kemur fram á bókmenntahátíðinni Iceland Noir.
Breski rapparinn Tinie Tempah er væntanlegur til Íslands og kemur fram á bókmenntahátíðinni Iceland Noir í dag, föstudag. Þar mun hann ræða um viðburðaríkt lífshlaup sitt og feril sem hefur fært hann frá því að vera óþekktur grasrótarlistamaður yfir í að verða einn þekktasti rappari heims.
Morgunblaðið náði tali af rapparanum í fyrradag en þá var hann á heimleið til London eftir að hafa haldið tónleika í Liverpool kvöldið áður.
„Ég áttaði mig eiginlega ekki á því hvað ég saknaði þess mikið,“ segir Tinie þegar hann er spurður um það hvernig honum líði með það að vera aftur farinn að troða upp á tónleikum. Hann segir að viðtökurnar hafi verið afar góðar, ekki neitt nema ást eins og hann orðar það. „Það hefur verið eins og draumur að komast út aftur og tengjast fólki á ný – líka að tengjast nýju fólki og nýjum áhorfendum.“
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗