Túfa á að koma KA upp úr 1. deildinni
Srdjan Tufegdzic, Túfa, skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA og tekur því við sem nýr þjálfari liðsins.
Túfa kom upprunalega til KA sumarið 2006 sem leikmaður og lék yfir 100 leiki í deild og bikar með liðinu áður en hann þurfti að leggja skóna á hilluna sumarið 2012 vegna meiðsla, þá aðeins 32 ára gamall.
Eftir að hann lagði skóna á hilluna kom hann inn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks en sama ár (2012) lauk hann UEFA-A prófi í þjálfun. Samhliða því að koma inn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks hélt Túfa áfram að sinna yngriflokkastarfinu.
Í ágúst 2015 tók hann loks við sem aðalþjálfari KA-liðsins og fór liðið á gríðarlegt flug undir hans stjórn og munaði minnstu að sæti í efstu deild yrði tryggt þrátt fyrir erfiða stöðu í toppbaráttunni er hann tók við stjórninni.
Á sínu fyrsta heila tímabili sem aðalþjálfari vann KA gríðarlega sannfærandi sigur í næstefstu deild og tryggði sér loks sæti í deild þeirra bestu eftir 12 ára fjarveru. KA var 16 stigum fyrir ofan liðið í 3. sæti og 9 stigum fyrir ofan Grindavík sem endaði í 2. sæti og fór upp með KA-liðinu.
Undir stjórn Túfa kom KA-liðið af miklum krafti inn í deild þeirra bestu þar sem liðið endaði í 7. sæti. Sumarið 2018 var liðið einnig aldrei í hættu á að sogast niður í fallbaráttu og varð niðurstaðan aftur 7. sætið.
Leiðir skildu að loknu sumri 2018 og í kjölfarið stýrði Túfa liði Grindavíkur og svo Val sem aðstoðarþjálfari. Árið 2022 tók hann við sem aðalþjálfari liðs Östers í Svíþjóð en þar var hann nálægt því að koma liðinu upp í efstu deild.
Síðar tók hann við hjá Skövde AIK í Svíþjóð en sneri loks aftur til Íslands árið 2024 og tók við sem aðalþjálfari Vals þar sem hann stýrði liðinu til 2. sætis í Bestu deildinni sem og í bikarúrslit. Hann hélt aftur utan er hann tók við sænska liðinu IFK Värnamo í fyrra en hætti þjálfun þess fyrr á árinu og snýr nú aftur heim til Akureyrar.
Túfa hefur lokið UEFA Pro þjálfaragráðunni en það er æðsta gráðan sem þjálfarar í knattspyrnuheiminum geta sótt sér.
„Við treystum honum svo sannarlega til þess að stýra KA aftur upp í deild þeirra bestu og hlökkum mikið til að vinna aftur með þessum frábæra karakter,“ segir í yfirlýsingu félagsins.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗