Merki um að bilunin sé á undanhaldi
Innlent | mbl | 13.11.2026 | 12:08
Fyrr í morgun sagði Microsoft að komin væru fram fyrstu merki um að kerfi fyrirtækisins væru að komast í lag. Hingað til hefur þjónusta Outlook þó að mestu legið niðri, en hér á fréttadeildinni og víðar virðist sem fyrstu póstar séu byrjaðir að skila sér.
Enn er þó of snemmt að segja til um hvort búið sé að komast fyrir vandann eða hvort þetta sé aðeins tilfallandi lausn hjá litlum hópi notenda.
Um er að ræða eina mestu kerfistruflun sem orðið hefur í heiminum, en tölvupóstur hundruð milljóna hefur verið óaðgengilegur í um 18 klukkustundir.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗