Láta illa af veðrinu í síðasta túr

Landað úr Birtingi NK í heimahöfn í Neskaupstað.

Landað úr Birtingi NK í heimahöfn í Neskaupstað. Ljósmynd/SVN/Smári Geirsson

Eyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE, auk Birtings NK, lönduðu í Neskaupstað í gær. Eyjatogararnir lönduðu líka síðastliðinn sunnudag og Birtingur á mánudag.

Á vef SVN kemur fram að Eyjaskipin hafi á sunnudaginn landað hvort sínum 40 tonnunum.

Aflinn er að uppistöðu sagður hafa verið þorskur.

„Vestmannaey fékk aflann á Gerpisflakinu en Bergey á Tangaflakinu. Birtingur landaði síðan 74 tonnum á mánudaginn.“

Haft er eftir Hjálmari Ólafi Bjarnasyni, skipstjóra á Birtingi, að aflinn hafi að mestu verið þorskur og ýsa og einnig dálítið af grálúðu.

„Við hófum veiðarnar á Glettingi en færðum okkur í Seyðisfjarðardýpið og enduðum á Digranesflakinu. Það var þokkalegasta veður í þessum túr,” segir hann.

Þá kemur fram að í gær hafi Vestmannaey landað 43 tonnum og Bergey 63 tonnum.

Dæmigert haustástand

„Aflinn var mest þorskur ásamt dálitlu af ýsu. Skipstjórarnir, Egill Guðni Guðnason á Vestmannaey og Ragnar Waage Pálmason á Bergey, létu illa af veðrinu í veiðiferðinni.“

Bæði skip eru sögð hafa byrjað á fiskimiðunum sem nefnast Gerpisflak, en eftir að brast á hundleiðinlegt veður og haugasjór hafi þau flúið að Hvalbaki og haldið áfram veiðum þar.

Þar hafi veðrið ekki verið alveg eins slæmt og heldur skárra sjólag.

Haft er eftir skipstjórum Eyjaskipanna að túrinn hafi einkennst af „dæmigerðu haustástandi“.

Birtingur, sem kom til löndunar í gær, er svo sagður hafa verið með tæplega 25 tonn af karfa sem fengist hafi utan við Berufjarðarálinn.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅