Dæmd í sjö ára fangelsi fyrir friðsamlegt andóf – nú heiðursgestur Íslandsdeildar Amnesty International í Hörpu
Rússneska listakonan og fyrrum samviskufanginn, Aleksandra Skochilenko (Sasha) verður heiðursgestur ásamt aðalframkvæmdastjóra Amnesty International, Agnèsi Callamard þegar Íslandsdeild samtakanna ýtir herferðinni, Þitt nafn bjargar lífi, úr vör í Hörpu, sunnudaginn 15. nóvember kl. 17:00.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Herferðin fagnar 25 ára afmæli í ár.
Opnunarhátíðin Sláum taktinn – listræn samstaða sameinar tónlist, gjörning og mannréttindabaráttu. Fjölbreyttur hópur listafólks kemur fram og risastóru gulu, sláandi hjarta verður varpað á framhlið Hörpu.
Gula hjartað er táknmynd herferðarinnar í ár og endurspeglar þann kraft sem býr í samstöðu fólks. Það táknar hjartslátt mannréttindabaráttunnar – venjulegt fólk sem lætur sig örlög annarra varða, jafnvel þótt það búi þeim víðsfjarri og sé því með öllu ókunnugt. Hver undirskrift er hjartsláttur, hver stuðningskveðja vekur von og með hverri aðgerð verður samstaðan sterkari. Þegar hjörtu sameinast í einum takti verður til samtakamáttur sem getur knúið fram breytingar og jafnvel bjargað mannslífum.
Dæmd í sjö ára fangelsi fyrir að skipta út verðmiðum í matvöruverslun
Sasha var handtekin í apríl 2022 eftir að hafa skipt út verðmiðum í matvöruverslun í Sankti Pétursborg fyrir miða með upplýsingum um innrás Rússlands í Úkraínu. Hún var dæmd í sjö ára fangelsi fyrir friðsamlegt andóf sitt.
Mál hennar var tekið fyrir í Þitt nafn bjargar lífi árið 2022 og fólk um allan heim, meðal annars á Íslandi, tók þátt í aðgerðum til að krefjast frelsis hennar. Í ágúst 2024 var Aleksandra látin laus í kjölfar umfangsmikilla fangaskipta milli Rússlands og vestrænna ríkja.
Nú kemur hún til Íslands til að segja sögu sína og miðla reynslu sinni af krafti alþjóðlegrar samstöðu.
„Fyrir aðeins fjórum árum var Sasha ein þeirra sem fólk um allan heim tók höndum saman um að berjast fyrir í herferðinni. Nú kemur hún til Íslands sem frjáls manneskja til að segja sögu sína og minna okkur á kraft alþjóðlegrar samstöðu. Saga hennar sýnir með áþreifanlegum hætti hvers vegna hver einasta undirskrift skiptir máli. Á viðburðinum gefst fólki tækifæri til að leggja sitt af mörkum og skrifa undir áköll til stuðnings einstaklingum sem sæta alvarlegum mannréttindabrotum víða um heim,“ segir Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og hún hvetur öll til að leggja málefninu lið á amnesty.is
Aðalframkvæmdastjóri Amnesty International ávarpar gesti
Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, verður einnig heiðursgestur við opnunarhátíðina og mun ávarpa gesti.
Hún á að baki langan og merkan feril á sviði mannréttinda, meðal annars sem sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um aftökur án dóms og laga. Í því hlutverki leiddi hún meðal annars rannsókn á morðinu á sádi-arabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi.
Pussy Riot, tónlist og sérstakur gjörningur
Á viðburðinum kemur fram fjölbreyttur hópur listafólks. Diana Burkot úr Pussy Riot flytur nýjan gjörning sem hún hefur skapað sérstaklega fyrir herferðina. Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson koma fram saman, auk hljómsveitarinnar TÁR sem þær Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa, kóra Sönghússins Domus Vox og tónlistarfólksins Jóhannesar Stefáns, Guðrúnar Bjarnadóttur og Eyju Ragnheiðardóttur.
25 ár af samtakamætti
Þitt nafn bjargar lífi er stærsta árlega mannréttindaherferð Amnesty International. Í 25 ár hafa milljónir einstaklinga tekið þátt og lagt sitt af mörkum til að frelsa samviskufanga, sameina fjölskyldur og knýja fram breytingar á óréttlátum lögum.
Í ár beinist herferðin að málum átta einstaklinga sem sæta alvarlegum mannréttindabrotum víða um heim. Fólk á Íslandi getur lagt sitt af mörkum með því að skrifa undir áköll til stjórnvalda og sýna þolendum mannréttindabrota samstöðu.
Nánar um einstaklingana átta: https://amnesty.is/thitt-nafn-bjargar-lifi/.
Sláum taktinn – listræn samstaða
Sunnudaginn 15. nóvember kl. 17:00 í Hörpu.
Aðgangur að viðburðinum er ókeypis.
Miðapantanir er hægt að nálgast hér.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗