Vilhjálmur: Glórulaust að selja Landsbankann

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins. mbl.is/María

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir glórulaust að selja Landsbankann. Hann vill þess í stað að ríkið nýti eignarhald sitt til að gera bankann að samfélagsbanka, með lægra arðsemismarkmiði, lægri útlánsvöxtum og lægri þjónustugjöldum.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Vilhjálmur birti í dag. Þar bregst hann við tillögu Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, um sölu bankans.

Ásdís nefndi sölu Landsbankans og niðurgreiðslu ríkisskulda sem leið til að skapa svigrúm til fjármögnunar samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Í samtali við Morgunblaðið áætlaði hún að þannig gæti ríkið sparað um 25 milljarða króna á ári í vaxtakostnað, eða um tíu milljarða að teknu tilliti til arðgreiðslna bankans.

Kallar eftir forsendum útreikninganna

Vilhjálmur segir áætlun Ásdísar fela í sér að gert sé ráð fyrir um 15 milljarða króna árlegum arðgreiðslum frá bankanum. Til samanburðar bendir hann á að Landsbankinn hafi greitt 34,9 milljarða króna í arð á þessu ári. Sú fjárhæð taki bæði til reglulegs arðs og sérstakrar arðgreiðslu.

„Ég vil sjá hvaða söluverð og hvaða vextir á skuldum ríkisins liggja að baki þessum 25 milljörðum,“ skrifar hann.

Hann bendir jafnframt á að frá árinu 2013 hafi Landsbankinn greitt 245,5 milljarða króna í arð og að nær öll sú fjárhæð hafi runnið í ríkissjóð.

Þá nefnir hann að eigið fé samstæðunnar hafi numið 341,6 milljörðum króna í lok september. Hagnaður fyrstu níu mánaða ársins hafi verið um 33,1 milljarður króna eftir skatta og arðsemi eigin fjár 13,3%.

„Þetta eru verðmætin og afkoman sem við erum að tala um þegar bæjarstjórinn leggur til að selja bankann.“

Vill gera Landsbankann að samfélagsbanka

Vilhjálmur leggur til að bankanum verði sett tveggja til fjögurra prósenta arðsemismarkmið og að útlánsvextir og þjónustugjöld verði lækkuð samhliða.

Hann tekur dæmi af 50 milljóna króna láni. Lækki vextir þess um eitt prósentustig lækkar árlegur vaxtakostnaður um 500 þúsund krónur, miðað við óbreyttan höfuðstól.

„Það eru krónurnar sem fara af reikningnum sem skipta heimilin máli,“ skrifar hann.

Vilhjálmur telur glórulaust að einkavæða bankann, sem hann kallar „gróðavél“, á meðan stjórnvöld séu ekki tilbúin að fara þessa leið. Meðan heimili og fyrirtæki þurfi að greiða það sem hann kallar okurvexti sé skárra að arður bankans renni í ríkissjóð.

„Ríkið á bankann fyrir hönd þjóðarinnar og á að nota það eignarhald til að lækka kostnaðinn sem fólk og fyrirtæki bera í hverjum mánuði.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅