Pierre Sage ekki lengi atvinnulaus - Aðeins í nokkra klukkutíma

Pierre Sage gæti verið á leið aftur til Lens í Frakklandi, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Crystal Palace staðfesti brottrekstur hans.

Franski þjálfarinn tók við Palace síðasta sumar en var látinn fara eftir aðeins 16 leiki í stjórastólnum.

Samkvæmt Foot Mercato er Sage nú nálægt því að snúa aftur til Lens, þar sem hann náði frábærum árangri á síðasta tímabili.

Undir hans stjórn hafnaði Lens í öðru sæti frönsku úrvalsdeildarinnar.

Gengi félagsins hefur hins vegar verið langt undir væntingum á yfirstandandi tímabili.

Lens situr í ellefta sæti deildarinnar og hefur aðeins náð þremur stigum í fyrstu fjórum leikjum sínum í Meistaradeildinni.

Liðið tapaði meðal annars 9-1 gegn Como.

Yannick Cahuzac er nú við stjórnvölinn en búist er við að honum verði sagt upp á næstu dögum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅