Nýr kafli hjá Cristiano Ronaldo

Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo. AFP/Ronaldo Schemidt

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo segir að framleiðsla sé hafin á Day 1s, fyrstu sjónvarpsþáttaröð hans.

Framherjinn, sem er 41 árs og leikur með Al-Nassr, verður framkvæmdaframleiðandi dramaþáttanna og kemur sjálfur fram í þeim.

„Spennandi fréttir! Framleiðsla á fyrstu sjónvarpsþáttunum mínum, Day 1s, er nýhafin. Meira á leiðinni!“ skrifaði Ronaldo á Instagram og deildi myndum frá tökunum.

Damian Lewis fer með aðalhlutverkið í þáttaröðinni, sem fjallar um heim félagaskipta, í hlutverki breska knattspyrnuumboðsmannsins Stanley Dalton, sem er skálduð persóna.

Rapparinn Dave kemur einnig fram, en Thierry Henry, fyrrverandi framherji Frakklands og Arsenal, mun leika sjálfan sig.

Verkefnið kemur frá UR Marv Studios, sem Ronaldo stofnaði ásamt breska kvikmyndagerðarmanninum Matthew Vaughn. Útgáfudagur hefur ekki verið tilkynntur.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅