„Við gætum sett upp fleiri sjálfsala en viljum það ekki“
Laufey Kristjónsdóttir sjálfboðaliði Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands. mbl.is/Árni Sæberg
Marengstertur, smákökur, konfekt og prjónles verða á boðstólum þegar Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands heldur jólabasar í Efstaleiti 9 sunnudaginn 15. nóvember klukkan 13.00 til 15.00. Deildin fagnar 60 ára afmæli í ár og segir Laufey Kristjónsdóttir að þótt sjálfboðaliðum hafi fækkað sé þörfin fyrir starfið enn til staðar. Mannleg samskipti séu þar stór hluti af því sem gefur starfinu gildi.
Kvennadeildin var stofnuð árið 1966 og hefur frá upphafi lagt áherslu á að sinna sjúkum og öldruðum. Í dag rekur hún sölubúðir á Landspítalanum við Hringbraut og í Fossvogi. Þar hitta sjálfboðaliðar starfsfólk, sjúklinga og aðstandendur, sem Laufey segir kunna vel að meta þjónustuna.
„Við gætum sett upp fleiri sjálfsala en viljum áfram reka búðirnar á spítölunum. Við viljum nefnilega vera í samskiptum við starfsfólk, sjúklinga og aðstandendur. Það gefur mikið að hitta viðskiptavini en ekki síður að hitta aðra sjálfboðaliða.“
Fleiri velkomin í prjónahópinn
Innan deildarinnar starfar einnig prjónahópur sem hittist vikulega í húsnæði Rauða krossins í Efstaleiti. Hannyrðir hópsins eru seldar bæði í sölubúðunum og á jólabasarnum.
„Við búum svo vel að eiga hæfileikaríka sjálfboðaliða en okkur vantar fleiri í prjónahópinn,“ segir Laufey.
Félagslífið skipar líka sinn sess. Sjálfboðaliðarnir fara í sumarferð, halda jólafund og fara öðru hverju í vettvangsferðir.
„Nýlega fórum við til dæmis í Borgarleikhúsið og fengum að kíkja á bak við tjöldin, sem var mjög skemmtilegt.“
Vilja halda í mannlegu samskiptin
Laufey segir sjálfboðaliðastarfið geta verið góða leið til að kynnast fólki og njóta samveru.
„Þótt sjálfboðaliðum hafi fækkað mikið hjá okkur er þörfin enn til staðar. Nú þegar mikið er rætt um einmanaleika er þetta ein leið til að vera innan um fólk. Nýir sjálfboðaliðar eru alltaf velkomnir og sömuleiðis karlmenn, en þeir eru nokkrir hjá okkur.“
Á undanförnum árum hefur ágóði af starfinu einkum runnið til Landspítalans og verið nýttur til kaupa á tækjum og húsgögnum.
„Ekkert mál að skella í nokkrar tertur“
Jólabasarinn er fram undan og þar munar um framlag bakaranna í hópnum. Sumir hafa mikla reynslu en aðrir eru að stíga sín fyrstu skref.
„Margir eru ótrúlega duglegir bakarar. Þeim finnst ekkert mál að skella í nokkrar tertur á meðan aðrir eru að stíga sín fyrstu skref og halda sig við hrákökur og konfekt.“
Úrvalið verður fjölbreytt, að sögn Laufeyjar.
„Á basarnum eru marengsterturnar alltaf vinsælastar. Einnig verða smákökur, konfekt, eitthvað sykurlaust og jafnvel glútenlaust á boðstólum. Þá má ekki gleyma hannyrðunum, en á basarnum svigna borðin undan prjónlesinu sem þær í prjónahópnum hafa verið að gera.“
Allur ágóði af basarnum rennur til verkefna á vegum Rauða krossins innanlands.
„Er nú ekki tilvalið að bregða sér af bæ og ná sér í eina tertu fyrir sunnudagskaffið?“
Hér fylgja uppskriftir að perutertu með súkkulaðikremi og hráköku með döðlum, sveskjum og valhnetum.
Peruterta með súkkulaðikremi
Svampbotnar
- 3 egg
- 2 dl sykur
- 1 dl kartöflumjöl
- 1 dl hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
Aðferð
- Hitið ofninn í 175°C með undir- og yfirhita. Smyrjið tvö 22 cm tertuform vel.
- Þeytið egg og sykur vel saman þar til blandan er ljós og létt.
- Bætið kartöflumjöli, hveiti og lyftidufti saman við og blandið varlega með sleif.
- Skiptið deiginu jafnt á milli formanna og bakið í um 35 mínútur. Látið botnana kólna áður en tertan er sett saman.
Súkkulaðikrem og fylling
- 50 g suðusúkkulaði
- 4 eggjarauður
- 5 msk. flórsykur
- 1 peli rjómi, þeyttur
- 1 dós niðursoðnar perur
Aðferð
- Bræðið súkkulaðið og látið kólna við stofuhita.
- Þeytið eggjarauður og flórsykur mjög vel saman. Bætið brædda súkkulaðinu út í og þeytið saman.
- Blandið þeytta rjómanum varlega saman við með sleif.
- Látið renna af perunum og skerið þær eftir smekk.
- Setjið súkkulaðikrem og perur á milli botnanna. Smyrjið kremi ofan á tertuna og raðið perum fallega yfir.
Hrákaka með döðlum og valhnetum
- 1 bolli döðlur
- 1 bolli sveskjur
- 1 banani
- 1 bolli valhnetur
- ½ bolli ristaðar kókosflögur
Ofan á
- Súkkulaði, eftir smekk
- Ristaðar kókosflögur, eftir smekk
- Engifer, ef vill
Aðferð
- Setjið döðlur, sveskjur, banana, valhnetur og kókosflögur í matvinnsluvél og vinnið saman.
- Mótið blönduna í köku á kökudiski og setjið í kæli eða frysti í um 20 mínútur.
- Bræðið súkkulaðið og dreifið yfir kælda kökuna.
- Skreytið með ristuðum kókosflögum og engifer ef vill.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

