Ógilda samþykki fyrir olíuvinnslu í Norðursjó

Hæstiréttur taldi samþykki áætlananna ógilt vegna annmarka á málsmeðferð. Mat á losun hefði aðeins náð til losunar við vinnsluna sjálfa, en ekki þeirrar losunar sem yrði þegar olían væri síðar brennd. AFP/Tom Little

Hæstiréttur Noregs komst í dag að þeirri niðurstöðu að samþykki stjórnvalda fyrir áætlunum um uppbyggingu og vinnslu á þremur olíusvæðum í Norðursjó væri ógilt.

Ekki hefði verið lagt fullnægjandi mat á losun gróðurhúsalofttegunda vegna brennslu olíunnar eftir vinnslu hennar.

Rétturinn féllst þar með á málatilbúnað umhverfissamtaka sem höfðu vefengt gildi samþykkisins. Niðurstaðan felur þó ekki sjálfkrafa í sér að leyfi olíufélaganna falli úr gildi.

„Þetta er sögulegur sigur fyrir loftslagið og norskt lýðræði,“ sagði Haldis Tjeldflaat Helle, yfirmaður Greenpeace í Noregi, við AFP skömmu eftir að niðurstaðan lá fyrir.

AFP hefur óskað eftir viðbrögðum norska orkumálaráðuneytisins við dóminum.

Losun við brennslu hafði ekki verið metin

Málið varðar olíusvæðin Tyrving, Breidablikk og Yggdrasil. Norsku umhverfissamtökin Natur og Ungdom og Greenpeace í Noregi höfðuðu málið árið 2023.

Hæstiréttur taldi samþykki áætlananna ógilt vegna annmarka á málsmeðferð. Mat á losun hefði aðeins náð til losunar við vinnsluna sjálfa, en ekki þeirrar losunar sem yrði þegar olían væri síðar brennd.

Að mati réttarins þarf að leggja mat á losun vegna brennslu jarðefnaeldsneytisins áður en áætlanir um vinnslu þess eru samþykktar.

„Stórir mengunarvaldar neyðast nú til að viðurkenna nákvæmlega hversu mikið þeir muni leggja til loftslagskreppunnar sem við erum í miðri,“ sagði Tjeldflaat Helle.

Ellefu dómarar tóku þátt í meðferð málsins í stað fimm eins og venja er. Sá háttur er hafður á í mikilvægum málum.

Starfsemin hélt áfram meðan málið var rekið

Umhverfissamtökin höfðu áður haft sigur á tveimur dómstigum. Héraðsdómur féllst á kröfur þeirra í janúar 2024 og áfrýjunardómstóll staðfesti niðurstöðuna í nóvember í fyrra.

Orkumálaráðuneytið áfrýjaði og hélt því fram að ekki væru forsendur til að stöðva verkefnin. Starfsemi á svæðunum þremur fékk að halda áfram meðan á áfrýjun málsins stóð.

Vinnsla er hafin á Breidablikk og Tyrving en áætlað er að hún hefjist á Yggdrasil árið 2027. Mat á mögulegum olíubirgðum á Yggdrasil var nýlega hækkað.

Hæstiréttur tók fram að olíufélögin væru ekki aðilar að málinu. Þótt samþykki áætlananna hefði verið dæmt ógilt þýddi það ekki sjálfkrafa að leyfi félaganna féllu úr gildi.

„Ráðuneytið verður hins vegar að taka málið til nýrrar meðferðar og gæta réttrar málsmeðferðar,“ sagði rétturinn.

Ráðuneytið taldi umhverfismatið fullnægjandi

Orkumálaráðuneytið hafði haldið því fram að fullnægjandi umhverfismat hefði farið fram vegna leyfanna í Norðursjó.

Terje Aasland, orkumálaráðherra Noregs, lagði fyrir dómsuppkvaðninguna áherslu á að landið legði sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar.

Niðurstaðan mun vekja athygli utan Noregs, þar sem lögfræðingar og félagasamtök hafa víða vefengt leyfi til vinnslu jarðefnaeldsneytis á grundvelli loftslagsáhrifa.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅