Gamlar perlur í nýjum búningi
„Það er alltaf gaman að heyra falleg lög og fallega texta,“ segir tónlistarkonan Silva Þórðardóttir. Ljósmynd/Berglaug Petra Garðarsdóttir
Önnur sólóplata Silvu Þórðardóttur, Þá uxu blóm, kom út í byrjun nóvember og verður haldið upp á útgáfuna með tónleikum á Fantasíu, vinnustofu Kjarvals, föstudagskvöldið 13. nóvember kl. 20.
Með Silvu verður hljómsveit skipuð Tómasi Jónssyni á píanó og Hammond-orgel, Þorgrími Jónssyni á kontrabassa, Hauki Gröndal á klarínett og þverflautu og Matthíasi Hemstock á trommur og á efnisskránni verða lög af plötunni nýju sem og nokkrir djass-standardar í uppáhaldi hjá henni.
Platan hefur að geyma íslensk dægurlög sem hafa sum hver verið í miklu uppáhaldi hjá Silvu í gegnum tíðina, auk annarra sem hún hefur uppgötvað nýverið. Þá uxu blóm var tekin upp í stúdíói frænda hennar, Bergs Þórissonar, sem sá um upptökur, hljóðblöndun og hljóðjöfnun.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/13/1691346.jpg)