Flutti 12 kíló til landsins frá Denver

Frá Denver í Bandaríkjunum.

Frá Denver í Bandaríkjunum. Ljósmynd/Colourbox

Maður hefur verið dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að flytja tæp tólf kíló af maríhúana til Íslands.

Efnin voru falin í farangurstösku hans þegar hann kom með flugi frá Denver í Bandaríkjunum til Keflavíkurflugvallar í september.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust og var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu.

Hann var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa flutt 11,72 kíló af maríhúana til landsins 13. september. Efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.

Flutti efnin gegn greiðslu

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að engin gögn lægju fyrir um að maðurinn hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.

Þá yrði ekki séð af rannsóknargögnum að hann hefði átt fíkniefnin eða tekið þátt í skipulagningu innflutningsins með öðrum hætti en að samþykkja að flytja þau til landsins gegn greiðslu. Einnig var litið til skýlausrar játningar hans fyrir dómi.

Á móti kom að maðurinn hafði flutt umtalsvert magn maríhúana til landsins til söludreifingar í ágóðaskyni. Taldi dómurinn að aðkoma hans væri ómissandi liður í því ferli.

Ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna

Við ákvörðun refsingar hafði héraðsdómur jafnframt til hliðsjónar dóm Hæstaréttar frá árinu 2003. Í forsendum héraðsdóms segir að frá uppkvaðningu þess dóms hafi það eitt breyst að tíðni og alvarleiki brota af þessu tagi hafi aukist.

Refsingin var ákveðin fimm mánaða fangelsi. Með vísan til magns fíkniefnanna og alvarleika brotsins taldi dómurinn ekki efni til að skilorðsbinda hana að neinu leyti.

Gæsluvarðhald sem maðurinn hefur sætt frá 13. september kemur að fullu til frádráttar refsingunni.

Maríhúanað var gert upptækt. Manninum var einnig gert að greiða tæplega 1,16 milljónir króna í sakarkostnað, sem er þóknun og aksturskostnaður skipaðs verjanda hans.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅