Lögreglustjóri braut lög við skipun í embætti

Halla Bergþóra Björnsdóttir, núverandi ríkislögreglustjóri, var lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu þegar skipað var í embættið. mbl.is/Eyþór

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mismunaði umsækjanda á grundvelli aldurs við skipun aðstoðaryfirlögregluþjóns árið 2023. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála í úrskurði frá 29. október. Umsækjandanum var ekki boðið í síðara viðtal en sá sem hlaut embættið var tæplega tveimur áratugum yngri.

Kærunefndin gerði athugasemdir bæði við mat á stjórnunarreynslu umsækjandans og gögnin að baki skipuninni. Eldri stjórnunarreynsla hans hafði verið metin lítils og í skýringum embættisins var vísað til þess að nýjum kynslóðum fylgdu nýjar áherslur og stjórnunarhættir. Ekki lá hins vegar fyrir hvernig metið hefði verið hvort reynsla hans nýttist í starfinu.

Halla Bergþóra Björnsdóttir, núverandi ríkislögreglustjóri, var lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu þegar skipunin fór fram. Hún gegndi því embætti frá 2020 þar til hún tók við embætti ríkislögreglustjóra í apríl síðastliðnum.

7–8 ára reynsla ekki talin vega þungt

Lögreglumaðurinn sem kærði fékk eitt stig af fimm mögulegum fyrir stjórnunarreynslu. Embættið mat reynslu hans til sjö til átta ára en taldi hana rúmlega fimmtán ára gamla og því ekki jafngilda nýrri reynslu.

Í upphaflegum rökstuðningi embættisins sagði að aðeins tveir af fimm umsækjendum hefðu uppfyllt kröfu um reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu og þeim því verið boðið í síðara viðtal. Við meðferð kærumálsins viðurkenndi embættið að sú staðhæfing væri röng. Þá var því haldið fram að allir umsækjendur hefðu uppfyllt hæfniskröfur en tveir stigahæstu verið boðaðir áfram. Kærunefndin taldi þessar skýringar ósamrýmanlegar upphaflegum rökstuðningi og stigagjöfinni.

Embættið viðurkenndi mistök

Embættið viðurkenndi jafnframt að stjórnunarreynsla kærandans hefði átt að gefa fleiri stig. Það hafnaði þó aldursmismunun og sagði að hærri einkunn hefði ekki breytt því hverjir kæmust áfram.

Kærunefndin taldi matið hvorki málefnalegt né forsvaranlegt. Heimilt væri að horfa til þess hversu nýleg reynsla væri, en ekki sæist hvernig inntak hennar eða farsæld hefði verið metið.

Athugasemdir kærunefndarinnar náðu einnig til mats á persónubundnum hæfniþáttum, svo sem samskipta- og leiðtogahæfni, sveigjanleika og álagsþoli. Í minnisblaði um viðtal umsækjandans komu ekki fram forsendur eða niðurstaða mats á þessum þáttum. Mat valnefndarinnar virtist að hluta hafa byggst á því að hann skorti skýra framtíðarsýn, þótt það hefði ekki verið sérstök hæfniskrafa í auglýsingu.

Minnisblað um frammistöðu útbúið eftir á

Þá skorti samtímagögn um aðkomu lögreglustjóra og hvaða gögn hefðu legið til grundvallar skipuninni. Minnisblað um frammistöðu umsækjandans var útbúið eftir ákvörðunina. Kærunefndin áréttaði að endanleg ábyrgð á störfum og ákvörðunum valnefndar hvíldi á þeim sem hefði vald til að veita embættið.

Embættinu tókst ekki að sýna fram á að aðrar ástæður en aldur hefðu ráðið því að kærandanum var ekki boðið í síðara viðtal. Niðurstaðan var því sú að við skipunina hefði verið brotið gegn lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅