Bilunin hefur ekki áhrif á sjúklinga
Bilun í þjónustu Microsoft hefur ekki haft áhrif á kerfi Landspítalans sem snúa að þjónustu við sjúklinga. Einu áhrifin á spítalann eru þau að tölvupóstar hafa ekki verið að berast.
Þetta staðfestir Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans, í samtali við mbl.is.
Það sama á við um Heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu, bilunin hefur ekki haft áhrif á kerfi sem snúa að sjúklingum, aðeins tölvupósta vegna bilunar í Outlook.
Þá hefur Heilsuvera einnig virkað sem skyldi, enda önnur kerfi sem keyra þá þjónustu. Þetta staðfestir Brjánn Jónasson, samskiptastjóri heilsugæslunnar, í samtali við mbl.is.
Alvarleg áhrif í Bretlandi
Bilunin hjá Microsoft hefur varað í rúmlega hálfan sólarhring og hefur haft áhrif á þjónustu fjölda fyrirtækja og stofnana um allan heim.
Hefur bilunin til að mynda haft alvarleg áhrif á bresku heilbrigðisþjónustuna NHS.
Í yfirlýsingu frá Rachel Harrison, sem fer fyrir málefnum opinberrar þjónustu hjá verkalýðsfélaginu GMB, segir að starfsfólk NHS sem tekur við neyðarsímtölum geti ekki komið upplýsingum um sjúklinga áfram með hefðbundnum hætti.
Það valdi gríðarlegri uppsöfnun óafgreiddra mála og geti leitt til glundroða, að sögn Harrison.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗