Ósigur fyrir FIFA og Infantino

Gianni Infantino, forseti FIFA.

Gianni Infantino, forseti FIFA. AFP/Karim Jaafar

Dómari í New York hefur hafnað tilraun tveggja dótturfélaga FIFA til að blanda sér í málarekstur UEFA, sem miðar að því að fá aðgang að gögnum um áætlun um fjárfestingu tengda heimsmeistaramótinu sem horfið var frá, að því er AP greinir frá.

Úrskurðurinn veitir UEFA ekki aðgang að gögnunum. FIFA sagði að dómarinn hefði enn ekki ákveðið hvort þau skyldu afhent.

Fyrirhuguð áætlun FIFA Forward Enterprise hefði falið í sér að einkafjárfestar greiddu 4,2 milljarða dollara fyrir meira en 20 prósenta hlut í nýju félagi sem hefði umsjón með viðskipta- og viðburðastarfsemi FIFA, þar á meðal heimsmeistaramótinu í knattspyrnu.

FIFA hætti við tillöguna fáeinum dögum eftir að hún var kynnt í kjölfar víðtækrar gagnrýni. UEFA höfðaði málið fyrir dómstólum í ágúst.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅