Ekki séð svona víðtæka bilun í langan tíma
„Við höfum ekki séð svona víðtæka bilun í mjög langan tíma sem hefur þessi gríðarlegu áhrif,“ segir Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS, um bilunina hjá Microsoft og áhrif hennar hér á landi.
„Við erum búin að vera að skoða þetta og kortleggja en bilunin er hjá Microsoft. Hún er búin að standa yfir í ansi langan tíma, sennilega með því lengsta sem við höfum séð, allavega í mjög langan tíma,“ svarar Magni, aðspurður.
Bilunin hefur áhrif á símkerfi
Hann segir bilunina mjög alvarlega en nýjustu fregnir frá Microsoft hermi að þeir séu að koma á ákveðnum stöðugleika í grunnkerfunum sínum. Engu að síður hafi bilunin enn áhrif á tölvupóstforritið Outlook og Teams.
Að sögn Magna reiða íslensk fyrirtæki og opinberar stofnanir sig mjög á þessa þjónustu. Meðal annars hafi bilunin áhrif á þau sem noti símkerfi frá Microsoft í gegnum Teams.
„Þetta er ansi víðtækt og því mikilvægt að aðilar séu með skilgreindar varaleiðir þegar slíkt kemur upp. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við sjáum bilun eins og þessa og sennilega ekki það síðasta,“ greinir hann frá og segir mikilvægt að afrit séu geymd og séu aðgengileg þegar bilanir sem þessar komi upp. Allur gangur sé á því hvernig þeim málum er háttað hérlendis.
Áhrif á 98%
Spurður út í fjölda þeirra sem hafa orðið fyrir áhrifum hérlendis vegna bilunarinnar segir hann erfitt að nefna ákveðna tölu en hefur heyrt hlutfallið 98% nefnt. Þar á hann við fyrirtæki og stofnanir, þar á meðal ráðuneyti, skóla og stærstu einkafyrirtækin, sem nýta sér Microsoft að einhverju leyti og bilunin hafi bein eða óbein áhrif á starfsemi þeirra. Hann nefnir einnig áhrif bilunarinnar á mikilvæga innviði.
Vandinn heldur væntanlega áfram inn í daginn, að mati Magna. Oftast er það þannig að kerfið byrjar ekki allt að virka aftur á sama tíma, heldur dettur það smám saman inn.
Spurður segir hann fólk ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að gögnin þeirra hverfi, heldur eingöngu aðgengið að þeim meðan á biluninni stendur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
