Vilhjálmur hjólar í hugmynd Ásdísar – „Glórulaust að selja Landsbankann“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir það fráleita hugmynd að selja Landsbankann til að fjármagna framkvæmdir vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, varpaði þessari hugmynd fram í samtali við Morgunblaðið í dag. Benti hún á að ríkið hefði aðrar leiðir til að fjármagna framkvæmdirnar en að leggja frekari álögur á íbúa höfuðborgarsvæðisins.
„Sem dæmi vil ég nefna að það má selja Landsbankann, en eigið fé bankans er um 350 milljarðar króna,“ sagði hún.
Sjá einnig: Ásdís með róttæka tillögu til að leysa samgönguvandann
Vilhjálmur segir að þessi hugmynd sé út úr kortinu.
„Mér finnst glórulaust að selja Landsbankann eins og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, leggur til. Hún áætlar að með sölunni og niðurgreiðslu skulda geti ríkið sparað 25 milljarða á ári í vexti, eða um 10 milljarða þegar tekið er tillit til arðgreiðslna. Það þýðir að hún reiknar með um 15 milljörðum í árlegan arð. Á þessu ári einu greiddi Landsbankinn 34,9 milljarða í arð, þar af 18,9 milljarða í reglulegan arð og 16,1 milljarð í sérstakan arð. Ég vil sjá hvaða söluverð og hvaða vextir á skuldum ríkisins liggja að baki þessum 25 milljörðum,“ segir Vilhjálmur í færslu á Facebook-síðu sinni.
Hann bætir við að frá árinu 2013 hafi Landsbankinn greitt 245,5 milljarða króna í arð, sem hefur nær allur runnið í ríkissjóð.
„Í lok september nam eigið fé samstæðunnar 341,6 milljörðum króna. Á fyrstu níu mánuðum ársins hagnaðist bankinn um 33,1 milljarð eftir skatta og arðsemi eigin fjár var 13,3%. Þetta eru verðmætin og afkoman sem við erum að tala um þegar bæjarstjórinn leggur til að selja bankann.“
Vilhjálmur segist vilja að ríkið nýti eignarhald sitt til að gera Landsbankann að samfélagsbanka.
„Setjum bankanum 2–4% arðsemismarkmið og lækkum útlánsvexti og þjónustugjöld samhliða. Á 50 milljóna króna láni munar einu prósentustigi 500 þúsund krónum í vexti á ári, miðað við óbreyttan höfuðstól. Það eru krónurnar sem fara af reikningnum sem skipta heimilin máli,“ segir hann.
Vilhjálmur endar færslu sína á þeim orðum á meðan stjórnvöld séu ekki tilbúin að stíga þetta skref sé glórulaust að einkavæða þessa „gróðavél“ eins og hann orðar það.
„Á meðan heimili og fyrirtæki þurfa að borga það sem ég kalla okurvexti er skárra að arðurinn renni í ríkissjóð. Ríkið á bankann fyrir hönd þjóðarinnar og á að nota það eignarhald til að lækka kostnaðinn sem fólk og fyrirtæki bera í hverjum mánuði.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗