Gauti furðar sig á vinnubrögðum borgarinnar – Fyrrverandi starfsmaður segir sorgarferlið rétt að byrja
Gauti B. Eggertsson, prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Bandaríkjunum, gagnrýnir harðlega hvernig Reykjavíkurborg hefur staðið að uppsögnum starfsfólks að undanförnu. Hann segir vinnubrögðin bera vott um virðingarleysi gagnvart starfsfólki og veltir því upp hvort pólitísk sjónarmið hafi ráðið för.
„Því miður sýnist mér erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að Reykjavíkurborg sé illa stjórnað í dag. Mér sýnist þetta einhvers konar blanda af fúski og dyggðaskreytingum,“ skrifar Gauti í færslu á Facebook.
Tilefnið eru umfangsmiklar uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, en samkvæmt birtum upplýsingum hafa uppsagnir og niðurlagning starfa náð til samtals 154 starfa frá því í júní. Hluta þeirra sem fengu uppsagnarbréf hefur verið boðið annað starf hjá borginni.
Fékk aðeins 14 mínútna fyrirvara
Gauti rifjar meðal annars upp reynslu konu sem hafði starfað hjá borginni frá árinu 2018. Hún hafi verið boðuð á fund með aðeins fjórtán mínútna fyrirvara, fengið uppsagnarbréf og verið gert að yfirgefa vinnustaðinn samstundis.
Hann ber þessa framkomu saman við eigin reynslu af stórum stofnunum erlendis, þar sem hann segir uppsagnir hafa verið framkvæmdar með mun mannúðlegri hætti.
„Ég vann um árabil í Seðlabanka Bandaríkjanna og hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þar var fólk líka látið fara, án nokkurs drama. Fólk vann út uppsagnarfrestinn og svo var haldin kveðjuveisla.“
Gauti segir að þessi vinnubrögð Reykjavíkurborgar hafi komið sér svo mikið á óvart að hann hafi ákveðið að kynna sér hvað rannsóknir segðu um framkvæmd fjöldauppsagna.
Hann hefur í kjölfarið tekið saman ítarlega grein þar sem uppsagnir borgarinnar eru skoðaðar í ljósi rannsókna í mannauðsfræðum. Þar gagnrýnir hann meðal annars skort á fyrirvara, upplýsingagjöf og samráði við starfsfólk.
„Pólitískt leikrit“
Gauti veltir því jafnframt upp hvort framkvæmd uppsagnanna hafi fremur snúist um að senda pólitísk skilaboð en að tryggja fagleg vinnubrögð.
„Nýr meirihluti vill minnka hið opinbera. Því kann það að hafa verið efst í huga hans að gera þetta með þeim hætti að eftir væri tekið í fjölmiðlum og af almenningi, fremur en að lágmarka raunverulegan skaða.“
Fékk tölvupóst tólf mínútum áður
Færsla Gauta hefur vakið viðbrögð. Í athugasemd við hana lýsir Ingi Þór Jónsson eigin reynslu af uppsögn hjá borginni.
„Takk kæri Gauti, ég var einn af þeim sem var rekinn, fékk e mail 12 mínútum fyrir uppsögn um að mæta í samtal,“ skrifar hann og bætir við:
„Ömurlegt sorgarferli sem er rétt að byrja.“
Gauti tekur undir gagnrýnina í svari sínu og segir frásögnina enn eitt dæmið um vinnubrögð sem erfitt sé að réttlæta.
Hann telur að þótt borgaryfirvöld hafi talið nauðsynlegt að draga úr útgjöldum hefði verið hægt að standa að breytingunum af meiri virðingu fyrir starfsfólki.
„Því miður sýnist manni þetta bera keim einhvers pólitísks leikrits, en ekki tilraun til góðra stjórnarhátta. Ég vona að það verði verðlaunað af kjósendum eins og það á skilið.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗