Sá fyrsti í sögu NBA

Cade Cunningham átti stórkostlegan leik.

Cade Cunningham átti stórkostlegan leik. AFP/Patrick Smith

Cade Cunningham skoraði 52 stig, sem er hans persónulega met, og gaf auk þess 11 stoðsendingar þegar Detroit Pistons sigraði Washington Wizards 144:140 á útivelli eftir tvíframlengdan leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Washington knúði tvívegis fram framlengingu með skotum á lokasekúndunum.

Cunningham tapaði boltanum aldrei og varð þar með fyrsti leikmaðurinn í NBA til að skora að minnsta kosti 50 stig og gefa tíu stoðsendingar án þess að tapa bolta síðan farið var að skrá tapaða bolta árið 1977.

Minnesota Timberwolves vann sinn stærsta sigur á tímabilinu þegar liðið burstaði Dallas Mavericks 133:94 á heimavelli. Bones Hyland skoraði 24 stig og LaMelo Ball 22 fyrir Minnesota, sem vann sinn fimmta leik í röð.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia 76ers 123:112 Toronto Raptors

Washington Wizards 140:144 Detroit Pistons, double overtime

Minnesota Timberwolves 133:94 Dallas Mavericks

Phoenix Suns 101:96 Charlotte Hornets

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅