Segir truflun hjá Microsoft hafa „alvarleg áhrif“
Erlent | AFP | 13.11.2026 | 11:03 | Uppfært 11:20
Fyrirtæki og stofnanir víða um heim hafa lent í vandræðum þar sem þjónusta Microsoft 365, þar á meðal Teams, Outlook og gervigreindarhugbúnaður Microsoft, Copilot, hefur ýmist legið niðri eða notendum gengið illa að tengjast. AFP
Truflun í þjónustu Microsoft hefur „alvarleg áhrif“ á bresku heilbrigðisþjónustuna NHS í dag, að sögn Rachel Harrison, sem fer fyrir málefnum opinberrar þjónustu hjá verkalýðsfélaginu GMB.
Í yfirlýsingu frá Harrison segir að starfsfólk NHS sem tekur við neyðarsímtölum geti ekki komið upplýsingum um sjúklinga áfram með hefðbundnum hætti.
Það valdi gríðarlegri uppsöfnun óafgreiddra mála og geti leitt til glundroða, að sögn Harrison.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗