Atvinnulaus en er að sækja sér milljarð í vasann
Dele Alli, fyrrverandi miðjumaður Tottenham og enska landsliðsins, gæti fengið 7,6 milljónir punda, jafnvirði rúmlega 1,3 milljarða íslenskra króna, við slit á fyrirtæki sínu.
Samkvæmt The Sun hefur Alli ákveðið að leggja niður fyrirtækið Dele Alli Promotions, sem heldur utan um ímyndarréttindi hans.
Fyrirtækið á eignir upp á 8,3 milljónir punda en skuldar tæplega 686 þúsund pund í fyrirtækjaskatt.
Eftir uppgjör skulda gætu því um 7,6 milljónir punda staðið eftir.
Alli, sem er þrítugur, er enn án félags eftir að Como á Ítalíu lét hann fara í fyrra. Hann lék aðeins einn leik fyrir ítalska félagið.
Englendingurinn á einnig tvö önnur fyrirtæki.
Annað þeirra, Future Homes Investments, á sex leigueignir sem eru metnar á rúmlega 1,5 milljónir punda.
Hitt fyrirtækið, Dele Investments, er metið á rúmlega 336 þúsund pund.
Alli átti á sínum tíma glæstan feril hjá Tottenham en hefur glímt við erfiðleika undanfarin ár.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗