Ummæli í fjölskyldudeilu ekki dæmd ómerk
„Áfrýjandi gat vart búist við öðru en að slíkum ávirðingum yrði svarað fullum hálsi,“ segir í dóminum. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur hefur staðfest sýknu manns af kröfum föðurbróður hans um að þrenn ummæli í tölvupóstum verði dæmd dauð og ómerk.
Málið tengist langvarandi fjölskyldudeilum um rekstur og stjórnun Hvilftar ehf., sem á samnefnda jörð í Önundarfirði.
Föðurbróðirinn taldi ummælin fela í sér ærumeiðandi aðdróttanir. Báðir dómstólar komust hins vegar að þeirri niðurstöðu að ekki væru skilyrði til að ómerkja þau. Við matið var meðal annars litið til samhengis ummælanna, fyrri samskipta aðila og þess hversu fáir fengu tölvupóstana.
Föðurbróðirinn var dæmdur til að greiða bróðursyni sínum 800 þúsund krónur í málskostnað fyrir Landsrétti, til viðbótar við 1,9 milljónir króna í héraði.
Fjölskyldudeilur um ættarjörð
Hvilft ehf. var stofnað árið 2011 um eignarhald og rekstur jarðarinnar Hvilftar og mannvirkja á henni. Félagið er í eigu fjölskyldu málsaðila og hafa báðir komið að stjórnun þess og rekstri.
Samkvæmt dóminum hafa lengi staðið harðar deilur um starfsemi félagsins. Ummælin sem krafist var ómerkingar á komu fram í þremur tölvupóstum frá árunum 2021 og 2023. Tveir þeirra voru sendir föðurbróðurnum og fáeinum öðrum ættingjum en sá þriðji starfsmanni fyrirtækjaskrár Skattsins.
Ólík áhersla á sönnun um meinta árás
Ein ummælin lutu að því að bróðursonurinn myndi eftir að hafa orðið vitni að því þegar föðurbróðir hans réðst á föður hans á fyrri hluta tíunda áratugarins. Föðurbróðirinn hafnaði því að atvikið hefði átt sér stað og taldi ummælin fela í sér ásökun um líkamsárás.
Báðir dómstólar töldu ummælin fela í sér staðhæfingu um staðreynd. Héraðsdómur lagði þó til grundvallar að bróðursonurinn hefði í góðri trú lýst eigin upplifun og yrði ekki krafinn frekari sönnunar. Orðasambandið „að ráðast á“ væri margrætt og yrði í þessu samhengi ekki skilið sem ásökun um refsiverða háttsemi.
Landsréttur tók sérstaklega fram að bróðursonurinn hefði ekki fært viðhlítandi sönnur á að atvikið hefði átt sér stað. Ný gögn sem hann lagði fyrir réttinn dugðu ekki til lögfullrar sönnunar.
Rétturinn taldi engu að síður ekkert benda til þess að ummælin hefðu verið sett fram gegn betri vitund eða í þeim tilgangi að sverta mannorð föðurbróðurins. Þau yrðu skilin sem fullyrðing um einhvers konar átök eða stympingar en fælu ekki í sér fyrirvaralausa fullyrðingu um refsiverða háttsemi.
Mátti búast við svari fullum hálsi
Landsréttur lagði áherslu á að ummælin hefðu verið hluti af svari við tölvupósti föðurbróðurins sem bróðursonurinn og hluti annarra viðtakenda máttu skilja sem ásakanir um glæpi, yfirhylmingu og þjófnað.
„Áfrýjandi gat vart búist við öðru en að slíkum ávirðingum yrði svarað fullum hálsi,“ segir í dóminum.
Auk föðurbróðurins fengu þrír einstaklingar póstinn. Þeir þekktu deilurnar og máttu því taka ásökunum á báða bóga með fyrirvara. Föðurbróðirinn hefði jafnframt átt auðvelt með að svara ummælunum innan þessa lokaða hóps.
Þá hefði hann ekki sýnt fram á að ummælunum hefði verið dreift víðar eða að þau hefðu haft sérstök áhrif á hann eða valdið honum álitshnekki.
Ekki ásakanir um ofbeldi eða fjárdrátt
Önnur ummælin vörðuðu það sem bróðursonurinn kallaði „langvarandi og ofbeldisfulla tilraun“ föðurbróður síns til að taka yfir félagið og „ljúga upp skuldum og innistæðum“.
Héraðsdómur taldi þau lýsa persónulegri upplifun og skoðun bróðursonarins á háttsemi föðurbróður síns. Landsréttur tók undir niðurstöðuna og áréttaði að ummælin fælu í samhengi sínu ekki í sér ásökun um andlegt eða líkamlegt ofbeldi. Þau lýstu þeirri upplifun bróðursonarins að föðurbróðir hans hefði reynt að taka félagið yfir með óbilgirni og yfirgangi.
Þriðju ummælin, um að föðurbróðirinn hefði „tæmt alla sjóði félagsins“, komu fram í tölvupósti til starfsmanns fyrirtækjaskrár. Héraðsdómur taldi þau lýsa skoðun bróðursonarins á því að málarekstur föðurbróður hans hefði valdið félaginu fjárhagslegu tjóni.
Landsréttur komst að sömu niðurstöðu og tók sérstaklega fram að í ummælunum fælist ekki ásökun um fjárdrátt eða sambærilegt refsivert auðgunarbrot.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 7. maí 2025 var því staðfestur í Landsrétti í gær.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗