Þetta vitum við um Microsoft-bilunina
Umfangsmikil alþjóðleg bilun hjá Microsoft hefur valdið vandræðum og í sumum tilvikum gert heilar þjónustur óvirkar, þar á meðal tölvupóst og gervigreindarforrit. Bilunin hefur staðið yfir í meira en hálfan sólarhring. BBC greinir frá.
Fyrirtæki og stofnanir víða um heim hafa lent í vandræðum þar sem þjónusta Microsoft 365, þar á meðal Teams, Outlook og gervigreindarhugbúnaður Microsoft, Copilot, hefur ýmist legið niðri eða notendum gengið illa að tengjast.
Íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa ekki farið varhluta af þessu og hafa til að mynda Háskóli Íslands, Ferðamálastofa og Sjúkrahúsið á Akureyri greint frá truflun á þjónustu.
Microsoft segir að bilunin stafi ekki af „netöryggisatviki“, en tilraunir til að laga vandann hafa hingað til borið lítinn árangur. Fyrir skömmu gaf tæknirisinn þó frá sér þær upplýsingar að greina mætti fyrstu merki stöðugleika.
430 milljónir notenda um allan heim
Viðskiptavinir greina frá misgóðum aðgangi. Margir hafa hvorki getað sent né tekið á móti tölvupósti, opnað tilteknar skrár né skoðað upplýsingar í dagatalsforritum sínum.
Sumir notendur hafa getað notað Teams og nýtt sér skilaboða- og fjarfundavirkni án vandkvæða.
Yfir 430 milljónir manna nota Microsoft 365-forrit samkvæmt vefsíðu Microsoft.
Umfang bilunarinnar hefur ekki verið staðfest, en á vöktunarvef Downdetector tilkynntu 140.000 manns frá 74 löndum um vandamál með Outlook á fimmtudagskvöld.
Raunverulegur fjöldi þeirra sem urðu fyrir áhrifum er líklega mun meiri, þar sem Downdetector byggir fyrst og fremst á tilkynningum frá notendum sjálfum.
OpenAI og Anthropic í vanda
Microsoft 365 er einnig notað af fyrirtækjum um allan heim og búist er við að bilunin hafi keðjuverkandi áhrif á aðra þjónustu.
Tæknirisarnir OpenAI og Anthropic hafa báðir greint frá vandamálum vegna bilunarinnar.
OpenAI, sem framleiðir ChatGPT, segist vera að rannsaka vandamál sem hefur áhrif á tengingar þess við þjónustur Microsoft og hefur valdið því að sum verkfæri hafa ekki virkað sem skyldi.
Ríkisstofnanir og opinber þjónusta, þar á meðal stjórnvöld í Singapúr og leyniþjónusta Ástralíu, hafa einnig sagst hafa orðið fyrir áhrifum.
Víðs vegar um Bretland hafa heilsugæslustöðvar, apótek, lögregla og skólar orðið fyrir áhrifum af biluninni.
Sumar heilsugæslustöðvar hafa hvatt sjúklinga til að senda ekki skilaboð í gegnum vefsíður sínar á meðan vandinn varir og nokkur stór lögregluembætti hvetja almenning til að hringja ef það vill leggja fram tilkynningu.
Útiloka netárás
Microsoft hefur útilokað netárás og segir að bilunina megi rekja til „aukins álags“ á innviði sína. Er þar átt við að netþjónar þurfi að takast á við mun meira álag en venjulega.
Í tilviki bilunarinnar hjá Microsoft urðu fjölmargir netþjónar „óvænt óaðgengilegir“, að sögn fyrirtækisins, sem beindi aukinni umferð á þá netþjóna sem eftir voru og olli álagi á þá.
Microsoft sagði fyrir skömmu að fyrirtækið sæi „fyrstu merki um stöðugleika“, en afkastageta þjónustunnar hefði „ekki enn náð eðlilegu stigi“.
Í fyrri yfirlýsingu hafði tæknirisinn sagt að tilraunir til lagfæringa „virkuðu ekki eins og búist var við“.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗