Gerðu hjálmanotkun að skyldu eftir slys

Kaldbakur EA og höfuðbúnaðurinn sem fjallað er um í nýrri skýrslu RNSA, annars vegar öryggishjálmur og hins vegar hlífðarskel. Samsett mynd/SBS/RNSA

Sjómönnum á öllum skipum Samherja er nú skylt að vera með öryggishjálm við alla vinnu á dekki. Útgerðin breytti vinnureglum sínum eftir að sjómaður á Kaldbaki EA fékk krók í hnakkann og rotaðist.

Krókurinn sem skipverjinn á Kaldbaki fékk í hnakkann.

Krókurinn sem skipverjinn á Kaldbaki fékk í hnakkann. Ljósmynd/RNSA

Fjallað er um slysið í nýrri skýrslu á vef Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA).

Í henni kemur fram að þegar skipið var á leið á veiðar frá Akureyri 3. nóvember í fyrra hafi skipverji fengið krók pokagils í höfuðið. Í framhaldinu hafi verið siglt með hann til Dalvíkur. Skipverjinn hlaut heilahristing en ekki önnur meiðsli.

Slysið átti sér stað á útstími meðan verið var að gera veiðarfæri tilbúin.

Voru að hífa troll þegar krókur losnaði

„Skipverjar voru að hífa belg trollsins aftur eftir þilfari skipsins og var einn þeirra að fara með pokagilsinn fram eftir þilfarinu þegar törnaðist á spilinu með þeim afleiðingum að hann missti takið á króknum sem lenti aftan á höfði annars skipverja,“ segir í skýrslu RNSA.

Fram kemur að á þessum tíma hafi verið notaðir bæði öryggishjálmar og hlífðarskeljar um borð í Kaldbaki, en hlífðarskeljar eru svolítið eins og fóðraðar derhúfur.

RNSA segir að öryggishjálmar sem verji höfuðið allt hafi verið notaðir þegar verið var að taka troll og láta það fara og við hífingar, en hlífðarskeljar hafi verið notaðar við vinnu á borð við netabætingar, undirbúning komu til hafnar og við frágang eftir brottför.

Draga lærdóm af öllum slysum

Gauti Þór Grétarsson, öryggisstjóri Samherja, segir málið strax hafa verið tekið alvarlega og ákveðið að skerpa á öllu vinnulagi hvað varðaði notkun öryggishjálma hjá útgerðinni.

Gauti Þór Grétarsson

Gauti Þór Grétarsson

 „Núna er alveg skýrt hjá okkur að við erum alltaf með hjálma á dekki, sérstaklega þegar verið er að hífa eitthvað og nota króka,“ segir hann.

Gauti segir öll slys skráð, stór sem smá, og kapp lagt á að læra af þeim og breyta vinnulagi til að forðast að þau endurtaki sig þar sem það er hægt.

Þetta vinnulag hafi verið tekið upp í greininni allri, enda sýni það sig að öllum slysum á sjó hafi fækkað mjög síðustu ár.

„Breytingunni var líka mjög vel tekið alls staðar hjá okkur og menn mjög harðir á öryggismálunum.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅