Skemmtilegast á Krít

Lúkas Petersson.

Lúkas Petersson er þriðji markvörður þýska liðsins Hoffenheim. Hann spilar með varaliði þess og er í hópnum í Evrópudeildinni.

„Það er mjög gaman að ferðast um Evrópu og koma á mismunandi leikvanga, til dæmis á Krít og svo í London hjá Crystal Palace. Þetta er mjög skemmtilegt og maður nýtur þess,“ sagði Lúkas við mbl.is.

„Skemmtilegasta ferðin hingað til fannst mér eiginlega vera til OFI á Krít. Við fengum gott veður og leikvangurinn var mjög flottur, alveg við sjóinn.

Stemningin hjá þeim var mjög góð. Ég var ekki að búast við svona mikilli stemningu á Krít, en stuðningsmennirnir voru frábærir og mjög háværir. Þetta var besta ferðin hingað til,“ sagði hann.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅