Garðabæjardrottningar stofnuðu sitt eigið félag og fögnuðu því
Ragnheiður Theodórsdóttir, Sigurlaug Pétursdóttir, Magnea Björg Jónsdóttir og Edda Björk Ragnarsdóttir. mbl.is/Karítas
Félag sjálfstæðiskvenna í Garðabæ fagnaði því í Audi-sal Heklu í Garðabæ að vera loksins komið með sitt eigið félag. Edda Björk Ragnarsdóttir er formaður félagsins.
„Hugmyndin er að tengja saman konur á ólíkum aldri og með ólíka reynslu, hafa gaman saman, skiptast á skoðunum og hvetja fleiri til að láta til sín taka í samfélaginu. Okkur langar að byggja upp fjölbreytt og skemmtilegt félagsstarf í kringum það.
Þetta var fyrsti viðburðurinn okkar og við héldum hann í Audi-sal Heklu. Við fengum Almar Guðmundsson bæjarstjóra og bæjarfulltrúana Björgu Fenger og Margréti Bjarnadóttur til okkar og Ólöf og Kristín úr Komið Gott tóku þau í létt grill. Við fengum líka góðan stuðning frá fjölmörgum fyrirtækjum við að gera kvöldið að veruleika,“ segir Edda Björk og bætir við:
„Félagið á svo enn eftir að fá sitt eigið nafn, en félagskonur munu kjósa um það síðar.“
Í stjórninni eru Agla Eir Vilhjálmsdóttir, Maren Benediktsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Harpa Gísladóttir, Áslaug Auður Guðmundsdóttir, Edda Gunnlaugsdóttir, Laufey Jóhannsdóttir, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Lilja Hrund Lúðvíksdóttir, Auður Magnúsdóttir og Sigríður Pétursdóttir.
Eins og sjá má á ljósmyndunum var stemning í húsinu!
Margrét Bjarnadóttir, Edda Björk Ragnarsdóttir, Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Ólöf Skaftadóttir, Sigþrúður Ármann og Kristín Gunnardóttir. mbl.is/Karítas
Kristín Björk, Halldóra Björk, Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir og Svava Gústafsdóttir. mbl.is/Karítas
Bergþóra Halldórsdóttir, Harpa Baldursdóttir, Árdís Hrafnsdóttir og Jóna Guðný Arthúrsdóttir. mbl.is/Karítas
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Sigríður Pétursdóttir, Maren Sól Benediktsdóttir og Edda Björk Ragnarsdóttir. mbl.is/Karítas
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
















