Salan rauk upp um 300%: „Engin smá aukning“

Arinbjörn Hauksson hjá ELKO segir sölu á útvörpum hafa aukist um meira en 300% milli ára. Um 700 útvörp seldust á fyrstu ellefu dögum nóvember. Samsett mynd: mbl.is/Elko/Colourbox

Íslendingar virðast ætla að taka viðbúnaðarleiðbeiningar almannavarna alvarlega, að minnsta kosti ef marka má sölu á útvörpum hjá ELKO.

Um 700 útvörp seldust hjá fyrirtækinu á fyrstu ellefu dögum nóvember og hefur salan aukist um yfir 300% milli ára.

Eftirspurnin hefur verið slík að fyrirtækið hefur þurft að útvega nýjar birgðir með flugi.

„Þetta er engin smá aukning í sölu á útvörpum,“ segir Arinbjörn í samtali við mbl.is.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf út bæklinginn Verum viðbúin 3. nóvember. Þar eru landsmenn meðal annars hvattir til að hafa útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum, vasaljós og aðrar nauðsynjar tiltækar á heimilinu.

Fór langt fram úr væntingum

Arinbjörn segir fyrirtækið hafa búið sig undir aukna eftirspurn eftir búnaðinum, en salan hafi farið langt fram úr væntingum.

„Fórum samt langt fram úr væntingum í sölu á þessu,“ segir hann.

Eftirspurnin hefur verið það mikil að fyrirtækið hefur þurft að útvega frekari birgðir með flugi.

Neyðarútvörp eru vinsæl um þessar mundir.

Neyðarútvörp eru vinsæl um þessar mundir. Ljósmynd/Elko

Rafhlöðusalan einnig aukist

Söluaukningin einskorðast ekki við útvörp. Að sögn Arinbjörns hefur sala á rafhlöðum aukist um 30% milli ára.

Hann segir einnig hafa orðið mikla aukningu í sölu á vasaljósum og höfuðljósum, þótt nákvæmar tölur um þá vöruflokka liggi ekki fyrir.

Í viðbúnaðarbæklingi almannavarna er meðal annars lagt til að heimili eigi nauðsynjar til að geta séð fyrir grunnþörfum sínum í að minnsta kosti þrjá daga ef röskun verður á grunnþjónustu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅