Carrick brast í grát þegar hann sagði bless við leikmenn United
Michael Carrick kvaddi leikmenn Manchester United með tárin í augunum í dag eftir að hafa verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra félagsins.
Carrick, sem er 45 ára gamall, tók við liðinu fyrir tíu mánuðum en slæmt gengi hefur orðið honum að falli. United hefur aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum sínum og er komið niður í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Samkvæmt The Sun var Carrick afar tilfinningaríkur þegar hann kvaddi leikmennina á æfingasvæði félagsins í Carrington.
„Hann var grátandi þegar hann kvaddi strákana. Hann sagði einfaldlega að hann væri farinn, tók í hendurnar á nokkrum og ók síðan í burtu,“ sagði heimildarmaður miðilsins.
Carrick og starfslið hans fá samtals fimm milljónir punda í starfslokagreiðslur.
Leikmenn United eru sagðir hafa staðið þétt við bakið á Carrick þrátt fyrir slæmt gengi og telja sumir að stjórnendur félagsins hafi brugðist honum á félagaskiptamarkaðnum í sumar.
Mauricio Pochettino er talinn líklegastur til að taka við liðinu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗