Bendir á algengan ósið Íslendinga – Margir gera þetta af góðum hug
Íslendingar eru gjarnir á að skipta yfir í ensku þegar þeir ræða við fólk sem talar íslensku með hreim, leitar að orðum eða þarf lengri tíma til að svara. Þótt þetta sé yfirleitt gert af góðum hug getur það haft neikvæð áhrif á möguleika fólks til að ná tökum á íslenskunni.
Þetta segir Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir, aðjunkt í íslensku sem öðru máli og verkefnastjóri Íslenskuþorpsins, í pistli sem birtist á Vísi í morgun.
Hún bendir á að fólk sem er að læra íslensku þurfi að fá tækifæri til að nota tungumálið í daglegum samskiptum. Þegar Íslendingar skipti sjálfkrafa yfir í ensku fari dýrmæt æfing forgörðum.
„Eitt stutt samtal virðist kannski ekki skipta miklu máli. En þegar þetta gerist aftur og aftur verða tækifærin til að æfa íslenskuna færri,“ skrifar hún.
Guðlaug Stella bendir á að tungumál lifi ekki aðeins í bókum og skólum heldur fyrst og fremst í samskiptum fólks. Þeir sem séu að læra íslensku þurfi tækifæri til að prófa sig áfram, leita að orðum, misskilja, spyrja aftur og öðlast smám saman aukið öryggi í málinu.
„Þú þarft ekki að vera íslenskukennari“
Hún hvetur Íslendinga til að sýna meiri þolinmæði og gefa fólki tíma til að tjá sig á íslensku í stað þess að grípa strax til enskunnar.
„Þú þarft ekki að vera íslenskukennari. Talaðu íslensku. Gefðu viðmælandanum aðeins meiri tíma. Ekki skipta strax yfir í ensku. Endurtaktu ef þarf. Orðaðu hlutina öðruvísi. Hjálpaðu til ef orð vantar. Haltu samtalinu áfram.“
Hún segir reynsluna af Íslenskuþorpinu, verkefni sem hefur meðal annars verið innleitt í leikskólum, sýna hversu miklu máli dagleg samskipti skipti.
Vorið 2026 höfðu 200 nemendur og 90 mentorar í 75 leikskólum í 18 sveitarfélögum tekið þátt í námskeiði á vegum verkefnisins.
Samkvæmt könnun meðal mentora og leikskólastjóra sögðust 73 prósent svarenda hafa orðið vör við miklar eða töluverðar framfarir í íslensku hjá þátttakendum. Þá greindu 70 prósent frá auknu sjálfstrausti þeirra í starfi.
Ábyrgðin hvílir líka á Íslendingum
Guðlaug Stella segir reynsluna af Íslenskuþorpinu sýna að fólk sé almennt tilbúið að hjálpa þeim sem eru að læra íslensku, en þurfi stundum leiðsögn um hvernig það geti best lagt sitt af mörkum.
Hún telur mikilvægt að samfélagið allt taki þátt í því að skapa tækifæri fyrir nýja málnotendur. Ekki sé nóg að hvetja fólk til að læra íslensku ef það fái síðan takmörkuð tækifæri til að nota hana.
„Ábyrgðin getur ekki eingöngu verið hjá þeim sem eru að læra málið. Hún er líka okkar sem tölum hana. Hvert samtal getur orðið lítið námstækifæri.“
Guðlaug Stella segir dag íslenskrar tungu næstkomandi mánudag kjörið tækifæri til að breyta þessu. Í stað þess að einblína á hvað fólk af erlendum uppruna geti gert til að læra íslensku ættu Íslendingar einnig að spyrja sig hvernig þeir geti sjálfir lagt sitt af mörkum.
„Svarið er einfaldara en við höldum. Talaðu íslensku við fólk sem er að læra íslensku,“ segir hún.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗