SPAR opnar í Neskaupstað
Kjörbúðinni í Neskaupstað hefur verið endurnýjuð og verður opnuð á morgun undir merkjum SPAR, þar sem boðið verður m.a. upp á nýbökuð brauð.
Samkaup opna á morgun, laugardag, verslun í Neskaupstað undir merki SPAR. Kjörbúðin var áður í húsnæðinu, við Hafnarbraut 13. Er þetta sjötta SPAR verslunin sem Samkaup opna hér á landi.
Verslunin í Neskaupstað var endurnýjuð frá grunni í samstarfi við SÚN, Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað, sem rekur íþrótta- og útivistarverslun gegnt SPAR versluninni, SÚN-búðina.
Í tilkynningu er haft eftir Svani Valgeirssyni, framkvæmdastjóra SPAR, Kram-búðanna og 10-11, að SÚN hafi viljað koma að verkefninu til að tryggja Norðfirðingum nýja og betri matvöruverslun.
Að sögn Svans verður vöruverð í nýju verslun SPAR að meðaltali um 10% lægra en í Kjörbúðinni. Mjólkurvörur og ostar verði á sama verði og í Nettó.
Verslunin í Neskaupstað hefur öll verið endurnýjuð. Byggður hefur verið pallur sjávarmegin við verslunina og von er á nýrri hurð og stærri gluggum út á pallinn á næstunni. Í versluninni verður einnig kaffihorn þar sem viðskiptavinir geta sest niður með kaffisopa og bakkelsi.
„Ég vil þakka SÚN og öllum sem hafa lagt hönd á plóg fyrir ánægjulegt samstarf við endurnýjunina. Verktakar hafa unnið dag og nótt við að gera búðina klára svo við gætum opnað á laugardaginn. Þetta hefur verið krefjandi en skemmtilegt verkefni og við hlökkum til að taka á móti Norðfirðingum og öðrum í nýrri og glæsilegri búð. Við vonum bara að vondar veðurspár rætist ekki fyrir opnunardaginn,“ segir Svanur Valgeirsson í tilkynningu Samkaupa.
Stefnt að sólarhringsopnun
Fyrst um sinn verður opnunartími verslunarinnar hefðbundinn, en á næstu vikum eða mánuðum verður hún opin allan sólarhringinn fyrir viðskiptavini með sérstakt aðgangskort. Utan auglýsts opnunartíma verður verslunin ómönnuð og ganga viðskiptavinir frá innkaupum í sjálfsafgreiðslu.
Verslunin verður sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, segir í tilkynningunni. Kerfið kemur frá Liberty Now, sem hefur meðal annars unnið með NorgesGruppen sem rekur SPAR verslanir í Noregi.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗