Kom frá Denver með ferðatösku fulla af marijúana

Karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að smygla tæplega 12 kílóum af marijúana til Íslands frá Bandaríkjunum. Efnin voru falin í ferðatösku mannsins þegar hann kom til landsins í september síðastliðnum.

Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness sem kveðinn var upp í gær.

Maðurinn kom til Íslands með flugi frá Denver í Bandaríkjunum þann 13. september. Í farangri hans fundust samtals 11,72 kíló af marijúana sem ætluð voru til söludreifingar hér á landi.

Maðurinn játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi. Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að ekkert benti til þess að hann hefði átt fíkniefnin eða komið að skipulagningu innflutningsins með öðrum hætti en að samþykkja að flytja þau gegn greiðslu.

Þá lá ekkert fyrir um að maðurinn hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.

Dómurinn taldi engu að síður brotið alvarlegt í ljósi hins mikla magns sem var í töskunni og hafnaði því að skilorðsbinda refsinguna.

Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 13. september og kemur sá tími að fullu til frádráttar fangelsisrefsingunni. Þá voru fíkniefnin gerð upptæk og honum gert að greiða tæplega 1,2 milljónir króna í sakarkostnað.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅