Nær hálfrar aldar reynsla af sölu á rafgeymum
Lárus Björnsson, rekstrarstjóri Skorra, talar um að þrátt fyrir að margt hafi breyst í rafgeymum þá breytist það aldrei að viðskiptavinurinn þarf að fá réttan rafgeymi og góða ráðgjöf. mbl.is/Kristinn Magnússon
Skorri hefur þjónustað íslenska bíleigendur, fyrirtæki og einstaklinga frá árinu 1978. Á þeim 48 árum sem liðin eru frá stofnun fyrirtækisins hefur tæknin breyst gríðarlega en áherslan er enn sú sama: framúrskarandi þjónusta, vandaðar vörur og rétt lausn fyrir hvern viðskiptavin.
„Það hefur ótrúlega margt breyst í rafgeymum á þessum árum. Bílarnir eru orðnir flóknari, rafbúnaðurinn meiri og tegundum rafgeyma hefur fjölgað mikið. Það sem hefur hins vegar ekkert breyst er að viðskiptavinurinn þarf að fá réttan rafgeymi og góða ráðgjöf,“ segir Lárus Björnsson, rekstrarstjóri Skorra ehf.
Skorri ehf. var stofnað í mars árið 1978 af Erni Johnson og hefur fyrirtækið verið rekið á sömu kennitölu allar götur síðan. Örn seldi síðan fyrirtækið 2007 en starfsemin hefur verið að Bíldshöfða 12 frá árinu 1988. TUDOR-rafgeymar hafa verið hluti af starfseminni frá fyrsta degi og rafgeymar eru enn í dag kjarninn í rekstrinum.
TUDOR-rafgeymar hafa verið hluti af starfseminni frá fyrsta degi og rafgeymar eru enn í dag kjarninn í rekstrinum. Ljósmynd/Aðsend
Meira en bara rafgeymir í bílinn
Þótt fólksbílar, jeppar og meðalstórir sendibílar séu stór hluti af daglegri þjónustu starfsemi Skorra ehf. er úrval rafgeyma langt frá því bundið við þá eina. Hjá fyrirtækinu fást rafgeymar fyrir allar gerðir farartækja, fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar, mótorhjól, báta, húsbíla og hjólhýsi auk fjölbreyttra lausna fyrir iðnaðarvélar, varaafl og sérhæfðan búnað hjá orkufyrirtækjum.
„Fólk kemur oft til okkar og segir einfaldlega að það vanti rafgeymi. Þá byrjar okkar vinna í raun. Við þurfum að vita í hvað rafgeymirinn á að fara, hvað hann á að knýja, hvernig hann verður notaður og hvaða kröfur eru gerðar til hans. Stærsti eða dýrasti rafgeymirinn er ekkert endilega sá rétti.“
Tæknin hefur þróast hratt. Við hefðbundna blýsýrurafgeyma hafa bæst AGM og EFB rafgeymar fyrir meðal annars bíla með start-stop búnaði auk lithium-rafgeyma sem hafa orðið sífellt algengari í húsbílum, hjólhýsum og öðrum ferðatækjum. Lárus talar um að lithium-rafgeymar hafi þróast mikið á síðustu árum og verðið sé að lækka.
„Litíumrafgeymar henta mjög vel í ferðatæki, til dæmis húsbíla og hjólhýsi þar sem þeir eru 50–60% léttari og geyma mun meira rafmagn en hefðbundnir sýru- eða AGM-rafgeymar. Munurinn þar er allt 40–50% af nothæfri orku miðað við rúmmál, það er wattímar sem er nothæf orka. Þeir þola líka að afhlaðast og hlaðast aftur mun oftar en sýru- eða AGM-rafgeymar og endast því mun lengur.
Við erum alltaf að bæta við fleiri stærðum af litíumrafgeymum og nú síðast í haust rafgeymi sem er 314 Ah og 4019 Wh sem er aðeins 30 kg. Stærsti AGM-rafgeyminn sem við höfum á lager er 240 Ah 2100 Wh og vigtar hann 71 kg. Á heimasíðu okkar má lesa um prófun okkar á afleiðslu rafgeyma en þar prófuðum við mismunandi rafgeyma, til að mynda sýru, AGM og litíumrafgeyma en við tengdum þá við stóran 12 volta kæliskáp með pressu og mældum úthaldið í klukkustundir þar til rafgeymar voru tómir.“
Litíumrafgeymar henta mjög vel í ferðatæki, til dæmis húsbíla og hjólhýsi þar sem þeir eru 50–60% léttari og geyma mun meira rafmagn en hefðbundnir sýru- eða AGM-rafgeymar. Ljósmynd/Aðsend
Betra að mæla áður en skipt er
Eitt af því sem Skorri ehf. leggur mikla áherslu á er að ekki eigi að skipta um rafgeymi að óþörfu. Viðskiptavinir geta komið að Bíldshöfða 12 þar sem Skorri ehf. er með hraðþjónustu og fengið rafgeyminn mældan og ástand hans metið áður en ákvörðun er tekin um skipti. Skorri ehf. býður meðal annars upp á fría ástandsskoðun og mælingu rafgeyma.
„Það er auðvelt að kenna rafgeyminum um þegar bíllinn verður tregur í gang en það þarf ekki alltaf að vera hann sem er vandamálið,“ segir Lárus. „Við viljum frekar mæla rafgeyminn fyrst, hleðslu frá bílnum og síðan mæla raunverulega stöðu rafgeymisins.
Þegar skipta þarf um rafgeymi er hægt að fá aðstoð við að finna rétta gerð fyrir viðkomandi ökutæki eða þann búnað sem rafgeymirinn á að knýja. Þessi áhersla á ráðgjöf og þjónustu er jafnframt ástæðan fyrir einkunnarorðum fyrirtækisins: „Sérfræðingar í rafgeymum.“
Starfsmenn Skorra, frá vinstri: Gunnar Örn Eiríksson, Gísli Friðriksson, Lárus Björnsson og Kári Gunnar Stefánsson. mbl.is/Árni Sæberg
Frá sólarsellum yfir í heildstæð orkukerfi
Skorri hóf sölu á sólarsellum árið 1988 þegar slík tækni var langt frá því jafn algeng og hún er í dag. Síðan þá hafa sólarsellur orðið öflugri og búnaðurinn í kringum þær þróast mikið.
Lárus talar um að í dag sé hægt að setja saman mun fullkomnari kerfi með sólarsellum, rafgeymum, hleðslustýringum, spennubreytum og öðrum stjórnbúnaði. Slíkar lausnir henti meðal annars í sumarbústaði, húsbíla, hjólhýsi og á aðra staði þar sem þörf er á sjálfstæðu eða sveigjanlegu raforkukerfi.
„Ný viðbót við þetta svið hjá Skorra ehf. eru færanlegir orkubankar með lithium-rafgeymum. Þeir brúa að mörgu leyti bilið á milli hefðbundins rafgeymis og fullbúins raforkukerfis og geta verið þægileg lausn þegar fólk vill hafa rafmagn með sér án þess að setja upp fasta raflögn eða stærra kerfi,“ segir Lárus.
„Orkubankarnir henta mjög vel fyrir fólk sem vill einfaldleika. Þú getur tekið orkuna með þér, hvort sem það er í útileguna, sumarbústaðinn, bílinn eða sem varaafl heima. Suma orkubanka er hægt að hlaða með sólarsellum.
Orkubankar geta meðal annars nýst til að hlaða síma og tölvur, keyra ljós, kælibúnað og ýmis önnur raftæki sem eru 230 volt. Þeir geta því verið áhugaverður kostur fyrir ferðalög, útivist og tímabundið varaafl án þess að notandinn þurfi að setja saman hefðbundið rafgeymakerfi. Þeir eru líka frábær lausn fyrir vararafmagn á þeim stöðum á landinu þar sem rafmagnsöryggið er ótryggt á veturna í vondum veðrum.“
Fæaranlegir orkubankar geta verið þægileg lausn þegar fólk vill hafa rafmagn með sér án þess að setja upp fasta raflögn. Ljósmynd/Aðsend
Reynslan verður verðmætari eftir því sem tæknin verður flóknari
Mikið hefur breyst frá árinu 1978. Bílar eru tæknivæddari, kröfurnar til rafgeyma meiri og nýjar lausnir á borð við lithium-rafgeyma, sólarkerfi og færanlega orkubanka hafa bæst við.
„Við getum auðvitað ekki rekið fyrirtæki árið 2026 eins og árið 1978. Vörurnar og tæknin breytast stöðugt og við þurfum að fylgjast vel með. En þjónustan á ekki að breytast. Fólk á að geta komið til okkar, sagt okkur hvað það þarf að gera og fengið lausn sem hentar,“ segir Lárus.
Eftir 48 ár í rekstri er því enn lögð sama áhersla á það sem hefur verið grunnurinn frá upphafi: þekkingu, þjónustu og réttu lausnina fyrir hvert verkefni. Skorri er að Bíldshöfða 12 í Reykjavík. Vöruúrval og vefverslun má finna á skorri.is.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



