„Verða líklega mörg gleðitár“
Ragnhildur Kristinsdóttir er með eins höggs forystu eftir fyrsta hring Santander Golf Tour-mótsins á Empordà-golfvellinum í Girona á Spáni.
Hún lék á 65 höggum, sex undir pari, og fékk sjö fugla og einn skolla. Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir léku báðar á tveimur höggum undir pari.
„Þetta gekk mjög áreynslulaust í dag. Þetta er líklega í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem mér fannst sveiflan mín frjáls,“ sagði Ragnhildur í viðtali við LETAS.
Mótið er það næstsíðasta á LET Access tímabilinu. Ragnhildur er í 21. sæti stigalistans en sjö efstu kylfingarnir tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.
Hún hafnaði í áttunda sæti í fyrra, einu sæti frá keppnisréttinum „Ef ég fæ keppnisréttinn á LET verða það líklega mörg gleðitár miðað við í fyrra.
En aftur, þetta er bara einn dagur í einu og það sem gerist, gerist. Ef ekki, þá fæ ég annað tækifæri í desember í Marokkó.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗