Brand mun upplifa „helvíti á jörðu“

Russel Brand.

Russel Brand. AFP/Brook Mitchell

Russell Brand mun upplifa „helvíti á jörðu“ í HMP Wandsworth-fangelsinu, að sögn fyrrverandi fanga í fangelsinu í London.

Brand, 51 árs, var fyrir viku sakfelldur fyrir eina nauðgun og þrjú kynferðisbrot og var á mánudag dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi.

Leikarinn er nú vistaður í fangelsinu í suðurhluta London, sem er eitt stærsta fangelsi Englands frá Viktoríutímanum.

„Tvímælalaust sá versti“

Chris Atkins, sem afplánaði átta mánuði í HMP Wandsworth fyrir skattsvik, lýsti fangelsinu sem „helvíti á jörðu“, að því er BBC greindi frá. 

Hann bætti við: „Fyrsti mánuðurinn er tvímælalaust sá versti. Andlega áfallið er gríðarlegt. Það var gríðarlegt fyrir mig og það verður tíu sinnum verra fyrir hann vegna eðlis brota hans og þess hve hátt hann hefur fallið.

Hann þarf að sætta sig við þetta og líkamlega áfallið við að vera skyndilega lokaður inni í dýflissu vikum saman, oftast án þess að hafa nokkurn til að tala við, er hræðilegt.“

Heimildarmaður nákominn grínistanum sagði að honum vegnaði „ótrúlega vel miðað við aðstæður“ og að hann hefði verið fluttur úr einangrun yfir á almenna álmu fangelsisins.

Russell Brand ásamt eiginkonu sinni Laura.

Russell Brand ásamt eiginkonu sinni Laura. AFP/Brook Mitchell

Starfsmaður í Wandsworth sagði að „mikil spenna“ hefði ríkt meðal fanganna vegna komu Brands.

„Fangelsi eru leiðinleg og það að Russell Brand sé kominn inn á þeirra svæði hefur veitt þeim smá skemmtun – þeir hafa barið á klefahurðir og hrópað nafn hans. Hann er nauðgari, svo það hefur líka ríkt nokkur reiði yfir því sem hann gerði.

Við erum mjög meðvituð um þá tilfinningu,“ sagði starfsmaðurinn.

Russell Brand.

Russell Brand. AFP/Henry Nicholls

Líklegt er að Brand sé enn einn í klefa. Í slíkum klefa er venjulega rúm, vaskur og salerni. Hann gæti haft sjónvarp og hraðsuðuketil, eftir því hvar í fangelsinu hann er vistaður.

Við komuna hafa eigur Brands verið gerðar upptækar. Þar á meðal eru farsími hans, fatnaður og önnur verðmæti. Hann hefur fengið gráan fangagalla, einkennisbúning sem sumir fyrrverandi fangar hafa lýst sem „klæjandi“ og „oft í rangri stærð“.

Fyrrverandi fjölmiðlastjarnan og grínistinn hefur fengið næturpakka. Í honum eru meðal annars kex, tepokar, lítill poki af morgunkorni, smá sykur og mjólkurferna. Þetta á að hjálpa föngum þar til þeir geta keypt vörur í fangelsisversluninni, að sögn góðgerðarsamtakanna Prison Reform Trust.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅