Þetta er dagurinn sem Pochettino mætir líklega til starfa
Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. nóvember 2026 10:00
Mauricio Pochettino Getty Images
Mauricio Pochettino er við það að verða ráðinn nýr knattspyrnustjóri Manchester United eftir að Michael Carrick var rekinn í dag.
Samkvæmt Sami Mokbel, fréttamanni BBC, hefur United náð samkomulagi við Pochettino og þjálfarateymi hans um að taka við liðinu.
Omar Berrada, framkvæmdastjóri United, hefur jafnframt haft samband við bandaríska knattspyrnusambandið vegna lausnarákvæðis í samningi Argentínumannsins.
United þarf að greiða sjö milljónir punda, jafnvirði rúmlega milljarðs íslenskra króna, til að losa Pochettino undan samningi sínum.
Félagið hefur tilkynnt bandaríska sambandinu að það hyggist virkja ákvæðið.
Pochettino er þó ekki væntanlegur til Manchester alveg strax. Hann mun samkvæmt fréttinni stýra bandaríska landsliðinu í komandi leikjum gegn Haítí áður en hann heldur til Englands.
Búist er við að Pochettino mæti til starfa hjá United 18. eða 19. nóvember og stýri þá sínum fyrstu æfingum. Ráðningin hefur þó ekki enn verið staðfest opinberlega.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗