Skellur fyrir Steph Curry
Steph Curry, ein helsta stjarna bandarísku NBA-deildarinnar í körfubolta, verður frá næstu tvær vikurnar vegna meiðsla.
Bleacher Report segir frá en Curry meiddist í tapi Golden State Warriors fyrir Houston Rockets, 115:108, í fyrrinótt.
Curry hefur verið frábær á tímabilinu hingað til og er búinn að skora 27 stig að meðaltali í leik á tímabilinu.
Golden State hefur þá unnið átta leiki og tapað fjórum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗