Mikill upplýsingaleki í þriggja ára netárás
Boeing 737-800-þotur Norwegian Air á Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi. Upplýsingum um 144.000 farþega var lekið í langvarandi netárás og SAS varð enn verr úti. AFP
Persónuupplýsingum 144.249 farþega norsku flugfélaganna Norwegian og Widerøe hefur verið lekið til óviðkomandi aðila í netárás á spænska tæknifyrirtækið Amadeus sem telja verður í hæsta máta óvenjulega.
Upp komst um árásina 27. október, en það sem gerir hana svo óvenjulega er að hún hafði staðið yfir í þrjú ár, frá 2023, þegar hennar varð vart.
Þetta kemur fram í bréfi sem Norwegian hefur sent persónuverndarstofnun Noregs, Datatilsynet, og greinir flugfélagið þar enn fremur frá því að stjórnendur þess bræði það nú með sér hvort öllum þessum fjölda farþega verði greint frá lekanum hverjum og einum.
Upplýsingar um pantanir hersins á vergangi
Árásaraðilarnir hafa haft aðgang að nákvæmum upplýsingum um flugferðir sem 75 norsk fyrirtæki og stofnanir hafa pantað, þar á meðal norski herinn, en auk flugfélaganna tveggja nær innbrotið einnig til netheima norsku ferðaskrifstofunnar Berg-Hansen.
Amadeus er sameiginlegur netvettvangur fyrir pantanir flugferða, hótelgistingar og lestarferða og er rekstraraðili þess fyrirtækið Amadeus IT sem hefur höfuðstöðvar sínar í spænsku höfuðborginni Madríd og greinir einnig frá þessu langvarandi netinnbroti á vef sínum.
Tekið er fram að engar greiðslukortaupplýsingar hafi komist í rangar hendur við innbrotið, en auk Norwegian og Widerøe hafa upplýsingar um 350.000 farþega skandinavíska flugfélagsins SAS í fjórum löndum komist í hendur óvandaðra.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗